gstuning wrote:
í dag ætti þessi vél að vera minnst 115hö /líter = 701
Já, en þetta er 10 ára vél. Ferrari tekur um 108 bhp/l út úr Enzo rokkinum, þannig að 102 fyrir 10 árum held ég að sé prýðilegt.
Þessar tölur segja heldur ekki alla söguna, heldur hve gríðarlegt viðbragð McLaren F1 hefur á nánast hvaða snúning sem er. Menn sem hafa ekið honum vilja meina að ekkert jafnist á við þann eiginleika bílsins.
Í samanburði sem gerður var á Edonis sem er 700bhp@8000, 570lb ft@3600 og 1480kg (473 bhp/tonn) vs. McLaren F1 sem er 627bhp@7500, 479lb ft@4000-7000(!) og 1137kg (551 bhp/ton) mátti alveg búast við að McLaren væri sneggri. En það sem var mest sláandi var hve ótrúlegar tölur McL hefur fyrir hröðun í gír. Ég vildi að ég gæti póstað þessum töflum (Evo #047) en það er full erfitt.
Það er bara hreint brilliant að sjá hve jafnar tölurnar eru, og sláandi lágar, sama hver gírinn er og hver hraðinn er. Það er eitt atriðið sem fær mann til að tilbiðja þessa vél. Og svo auðvitað hljóðið - ég man ekki eftir öðru eins í götubíl, eina sem slær því við er hugsanlega BRM V16 Mk 2 '53...
_________________
Kalli - Mal3
Bow down to
Daihatsu power!
Daihatsu Charade
TS 1.3i '93
Alltaf hægt að glotta að þessum stafrófssúpudósum
