IceDev wrote:
5 ár?
Hefur þú íhugað þann möguleika að sumir reiða á farartækin sín í öllum atburðum lífsins?
Atvinna, uppeldi, fæðuöflun, læknisaðstoð og þessháttar?
Tökum sem dæmi leigubílstjóra
Hann á 2 börn og er eina sem hann kann er að aka leigubíl.
Einn daginn fer hann á árshátíðina, verður örlítið ölvaður og keyrir svo heim þunnur næsta dag( s.s yfir 0,51 prómill, sem í manni eins og mér eru 2 bjórar skv. Doktor.is)
Nú veit ég ekki með ykkur en mér finnst fullhart að hann þurfi að gjalda með sínu starfi í 5 ár fyrir það sem að hann e.t.v vissi ekki af og taldi sig vera í ökuhæfu ástandi
Hann missir vinnuna, getur því ekki unnið og fer á atvinnuleysisbætur. Hann getur nú varla fleytt sér og fjölskyldu sinni á því
Ég persónulega tel mig fullhæfan að aka bifreið eftir 1-2 bjóra og drekki ég 1 bjór þá finnst mér allt í lagi að aka bifreið
Ég geri mér fulla grein að það eiga margir hérna eftir að halda að ég sé einhver stuðningsmaður ölvunaraksturs og hoppa hæð sína af reiði.
Ég er náttúrulega enginn stuðningsmaður þess og tel ég margir hérna hafi ekið bifreið nokkuð þunnir og talið sig vera í ökuhæfu ástandi...ég veit ég hef ekið helþunnur, ekki að ég sé stoltur af því
Ég man einnig eftir því sem að Krullih sagði, aldrei var mér sagt í ökuskóla að það væri hættulegt að keyra þunnur....sem er náttúrulega kjánalegt
Auka fræðslu, við vitum vel að scare tactics virka ekki...fólk sem keyrir fullt er ekki að hugsa dæmið til enda....vegna þess að það er, já ótrúlegt en satt, ölvað!
en það er samt bannað og verður það þangað til að lögum verður breytt ... ef að þessi leigubílstjóri fer á hausinn af því að hann getur ekki fundið sér aðra vinnu en akstur þá hefði hann átt að hugsa sig 2 sinnum um að keyra eftir fyllerí.