Það var frekar fyndið þegar ég vaknaði í gær og talaði við Frank hótelstjóra. Hann sagðist hafa farið með drifið. Ég var ekki alveg að kveikja - hélt kannski að hann hefði farið með gamla drifið til þeirra sem ætla að endurbyggja það.
Nei, HANN fór með nýja drifið inn í umboð
Var svolitla stund að melta þetta og hann sagði mér svo söguna.
Það var hringt í hann kl. 7 á laugardagsmorguninn frá umboðinu (þeir höfðu fengið kortið hans daginn áður) og þeir segja að drifið hafi ekki komið með DHL vegna þess að það hafi KVIKNAÐ Í FLUTNINGABÍLNUM SEM FLUTTI ÞAÐ!!!!!! Hversu mikil helv. andsk. óheppni á að fylgja þessu máli?!?!?!?
Það tókst þó að bjarga farminum úr bílnum en hann náði ekki í tæka tíð í dreifingarmiðstöðina til að komast í útkeyrslu á laugardagsmorgun. Og ef umboðið fengi ekki hlutinn kæmust þeir ekki í þetta fyrr en á þriðjudag
Þannig að nú voru góð ráð dýr en Frank gerði sér lítið fyrir, án þess að ræða nokkuð við mig sem svaf, og fór niður í dreifingarmiðstöð í klukkutíma fjarlægð og náði í drifið (leitaði sjálfur að því í skemmunni því liðið þar gat ekki fundið það) og fór með það inn í umboð.
Þeir náðu síðan að klára og bíllinn er smooth as silk að keyra.
Held að það séu ekki margir sem myndu gera þetta fyrir sína hótelgesti!!!
Það er alveg á hreinu að ég mun gista þarna hér eftir á hringnum!!
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...