Jæja ég fékk sko sárabót í dag fyrir þetta vesen með bílinn.
Labbaði niður á braut í dag þegar hún opnaði í 2 tíma seinnipartinn. Það var ekki jafn mikið að gera og í gær en samt slatti af liði og gott veður - sól og hiti.
Var að chatta við bretana sem eru á hótelinu. 2 þeirra eru á mótorhjólum og einn á Skyline. Svo komu þarna bretarnir sem voru á Lotus Elise og ég sníkti hring. Það var verulega skondin upplifun miðað við að fara hringinn í M5. Þessi bíll er einhver 750 kg, tonni léttari en minn. Enda kom það í ljós að hann gat staðið hann flatann í beygjum og það var ekkert mál - bíllinn var það léttur. Var barasta nokkuð sáttur eftir þennan hring.
Þá birtist einn kappi enn frá því í gær - Finninn á Corvette Z06. Jamms, 7 lítra, 505 hestafla monsterinu.
Hann skellti sér hring og var nokkuð snöggur með hann og fór inn á bílastæði. Ég skellti mér að skoða bílinn og fór að spjalla við hann.
Þetta samtal átti eftir að verað MJÖG áhugavert. Gaurinn heitir Kimmo Kaarna og rekur tuning fyrirtæki í Finnlandi. Hann er búinn að eiga 20 Porsche bíla, þám. GT3 en gafst upp á þeim og fékk sér Corvettuna. Fyrirtækið hans tunar Porsche bíla og hann er expert engine builder.
Hvað segir hann um Porsche?
"The new Porsche cars are too soft - they have become cars for women" !!!!!!!
Ég þurfti að láta segja mér þetta tvisvar ef ekki þrisvar en hann er alveg gallharður á þessu. Hann vildi meina að nýju bílarnir (reyndar ekki Carrera GT) væru meira og minna bílar fyrir uppa, ekki með dry sump og að þú mátt ekki keyra þá á track. Það er víst smátt letur í manualnum að ef þú ætlar að tracka þá þarftu einhverja aftermarket olíupönnu. Svo voru fleiri hlutir sem hann talaði um. Einnig sagði hann að ef einhver hefði sagt við hann þegar hann fékk GT3 bílinn sinn fyrir 3 árum að hann yrði á Corvettu í dag þá hefði hann sagt hinn sama geðveikann.
Hann sagði að enginn hafi tekið framúr honum á brautinni um helgina og að Corvettan væri hraðari en GT3 bílarnir.
Nú var ég orðinn VERULEGA heitur fyrir því að fá hring en hann eitthvað hummaði það fram af sér, sagðist vera með farangur frammí. Ok, ég var ekkert að pressa meira strax og kappinn fór annnan hring. Á meðan vann ég í málinu og fékk bretana til að lofa að líta eftir farangri kappans ef ég myndi fá hring.
Anyways, seinna rakst ég aftur á hann á stæðinu og við fórum að spjalla aftur um bíla og brautina. Þá kom upp úr dúrnum að hann er einhver fyrrum meistari á Norðurlöndum í karti og sportbílakappakstri - búinn að keppa í mörg ár.
Nú bara VARÐ ég að fá hring með honum. Lét vaða og spurði aftur og nú gaf hann sig, setti töskuna afturí og sagðist ekki ætla að keyra 100% út af farangrinum. Úje!!!!
Keyrðum inn á brautina og strax þegar við komum framhjá síðustu keilunum og inn á beina kaflann þá vissi ég að gaurinn var ekkert að bulla. Hann keyrði gjörsamlega að því að mér fannst flat out og við erum að tala um verulega agressífa keyrslu, notaði alla kanta og fór hárrétt í allar beygjur. Það voru margar beygjur sem ég var að spá í að það væri ekki séns að hann myndi ná beygjunni en alltaf hafðist það. Hann fór mest í 265 og það var ekki á beina kaflanum. Hann missti bílinn einu sinni að aftan en var eldsnöggur að ná honum aftur.
Nú hef ég líka farið með Sabine í M5 en þetta var næsta deild fyrir ofan - MUN meiri læti og meiri hraði. Það var mjög lengi að fara af manni Sólheimaglottið eftir þennan hring.
Hér eru nokkrar myndir af kappanum og bílnum:
Eins og ég segi - þessi hringur var alveg til þess að redda deginum!!!
NB. Allar upplýsingarnar um kappann eru frá honum sjálfum - er ekkert búinn að tékka hans bakgrunn.
_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR

Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...