Jæja nú er loksins komið að því - lagt í hann á morgun.
Förum seinni partinn og gistum á Höfn. Svo austur á Seyðisfjörð morguninn eftir.
Var með bílinn í Nesradíó í dag, þeir voru að hljóðeinangra hann fyrir mig og tókst bara vel til. Pústið var búið að opna sig þannig að farþegum fannst of hávært í bílnum (mér fannst það bara ok). Nú er búið að dempa þetta niður. Þeir rifu allt afturúr bílnum, botninn úr farangursrýminu og klæddu með þessum mottum úr Bílasmiðnum. Einnig var sett undir aftursætið og á bríkina fyrir framan/neðan aftursætið.
Svo er búið að græja það að 2 stk Pilot Sport 2 afturdekk verða tilbúin í Hamborg - þetta verður svona pitstop sem Smári er búinn að arransera. Bridgestone afturdekkin eru orðin nærri slétt að innan, eða eins og Aron orðaði það í TB - "Er búið að vera að spóla svolítið????".
Þannig að nú er ég bara að pakka og hlaða Scooter inn á Phatboxinn
