bimmer wrote:Svolítið fyndið þegar maður lætur bílinn renna að ljósi við hliðina á öðrum bíl og svo þegar run er tekið heyra menn þetta garg við hliðina á sér og glápa stjarfir á mann með alveg óborganlegum svip.
Nokkrir ekki alveg sáttir við upptakið í sínum bíl í dag.
Það kemur náttúrulega flest öllum verulega á óvart að heyra svona ÖSKUR frá þessu boddíi - því þessir bílar eru nú ekki beint sjaldgæfir á götunni (normal E39 þ.e.a.s.). Þetta hlýtur að vera fyndin sjón að sjá svipinn á næsta manni
Helv... þarf að vinna að því að koma mér í þessi spor... fátt eins skemmtilegt og sleeper effektin í umferðinni.
Má kannski skjóta inn hér, meðan ég átti E21 323i heima þá lennti ég í spyrnu við mann á mínum aldri sem var á splunkunýjum 2 lítra Mondeo... hann var svo hissa að tapa fyrir mér, þannig að hann reyndi þrisvar sinnum til viðbótar og tapaði hvert skipti fyrir þessum ELD GAMLA bíl - í síðustu tveimur ferðunum sá ég að hann hlæjandi alveg eins og vitleysing áður en hann gaf thumbs up... hann komst bara ekki yfir þetta

Bíllinn þinn ekki síðri ! Alltaf gaman að sjá þegar menn virkilega HUGSA um bílinn sinn og breyta rétt 


