Sælir félagar.
Í gær var undirritaður samningur milli BMWkrafts og Bílabúðar Benna.
Benni ætlar að veita okkur góðan afslátt á dekkjum, verslun og verkstæði ásamt því að vera með ýmsa viðburði í samstarfi við okkur eins og til dæmis löngum fimmtudegi, þar sem þeir ætla að bjóða okkur í heimsókn.
Þar verða ýmsar vörur á sértilboði og verður gert betur grein fyrir þeim þegar nær dregur einnig verða grillaðar slöngur og drykkjarföng. Við gerum þetta kvöld að samkomu og endum á hóprúnti.
Við fáum eftirfarandi afslætti hjá þeim:
10% afsláttur af vörum í verslun.
15% afsláttur af dekkjum, olíu og síum.
20% afsláttur af vinnu.Einnig ætla þeir að gera enn betur við okkur í dekkjamálum næstu vikurnar og bjóða okkur dekk á sérkjörum, þar sem ekki er hægt gefa út extra flatan afslátt á öll dekk þá mun ég taka við tölvupósti á
robotic hjá simnet.is þar sem
meðlimir senda mér hvaða dekkjastærðir þig vantar ásamt tegund ef þú vilt ákveðna og notendanafn á spjallinu. Ég sé svo um að áframsenda þessar beiðnir á Bílabúð Benna og þeir svara þá með verð.
Þannig að lágmarksafsláttur verður 15% og svo verður mismunandi hvaða svigrúm þeir hafa upp á auka afslátt.
Það verða líka sértilboð á ákveðnum vörum í verslun og mun það verða kynnt sérstaklega í sérþræði í hvert sinn.
En að þessu sinni verða
mælar og kerti á 20% afslætti út apríl.
_______________________________________________________________________________
Það þarf varla að taka fram að þessi sérkjör eru aðeins í boði fyrir meðlimi kraftsins. Afslátturinn er fljóttur að borga upp þennan 2 þúsund kall sem við rukkum í félagsgjöld og hvet ég alla að gerast meðlimir sem fyrst til að geta nýtt sér fríðindin sem fylgja því að vera fullgildur meðlimur bmwkrafts
Þú getur skráð þig í klúbbinn
hér og frekari upplýsingar um fríðindi má nálgast
hérEf þú skráir þig í klúbbinn og langar að kaupa dekk á þessum flotta díl þá getur þú látið fylgja með póstinum að þú hafir verið að greiða félagsgjöldin.
Edit
Þetta er ekki lengur í boði