Í sumar verðum við með í gangi
ljósmyndakeppni. Keppnin mun standa
frá og með 1. júní til og með 15. október. Nánari upplýsingar hér fyrir neðan og á
http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/
Ljósmyndakeppni BMWKrafts
Tilgangurinn með keppninni er að sameina áhugamál margra meðlima BMWKrafts, ljósmyndun og BMW og allt tengt BMW.
Þema
Allt tengt BMWKrafti, BMW og/eða öðrum tengdum málefnum.
Tímabil
Keppnin stendur frá og með 1. júní til og með 15. október 2007.
Verðlaun
Vegleg verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar að mati dómnefndar. Verðlaunin verða kynnt nánar síðar.
Reglur
* Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir í BMWKrafti
* Hver þátttakandi má senda inn þrjár myndir. Ef þátttakandi sendir inn fleiri myndir eru aðeins þær þrjár nýjustu teknar gildar.
* Myndir skal taka á stafræna myndavél og skila á jpeg sniði (.jpg)
* Upplausn myndar er frjáls. Lágmark stærð mynda er þó 250px á annanhvorn kantinn.
* Myndir skulu hafa verið teknar af sendanda á tímabilinu frá og með 1. júní til og með 31. ágúst 2007.
* Innsend mynd verður að vera tekin á einum lýsingartíma (e. exposure). Undantekning á því eru svokallaðar HDR myndir. Hvorki má bæta við hlutum úr öðrum myndum né teikna inn á myndina.
* Heimilt er að laga minniháttar galla í myndum en samt sem áður er bannað að eyða, afrita, búa til eða færa þýðingarmikinn hluta myndarinnar. Við mælum sterklega með að þú takir fram allar breytingar sem gerðar eru á myndinni í reitinn "Lýsing" til að auðvelda dómnefnd yfirferð á myndum.
* Allar breytingar á myndum sem eru gerðar í myndavélinni sjálfri eru leyfðar.
* Ekki má bæta neinum texta við/á myndirnar eftirá.
* Óheimilt er að stækka myndflöt (canvas) til neins annars en að búa til sýnilegan ramma sem er aðgreinanlegur frá myndinni.
* Þátttakendur gætu þurft að senda inn óbreytta, upprunalega mynd eins og hún var tekin ásamt lýsingum á því hvernig myndin var unnin eftir á í tölvu. Upprunalega myndin verður að innihalda EXIF upplýsingarnar gildar og óbreyttar. Ef ekki tekst að útvega myndina áður en 10 dagar líða frá því að óskað er eftir henni verður myndin dæmd úr leik.
* BMWKraftur áskilur sér rétt til að nota myndirnar í kynningarefni og í birtingu úrslita keppninnar. Myndirnar munu þá vera greinilega merktar höfundum. Öll önnur notkun mynda er bönnuð nema að höfðu samráði við höfund.
* Dómnefnd áskilur sér rétt til að hafna myndum sem brjóta gegn þessum reglum eða þykja af öðrum ástæðum ekki falla undir skilyrði og/eða þema keppninnar.
* Dómnefnd hefur einnig rétt til að framlengja skilafrestinn eða jafnvel blása keppnina alveg af ef ekki næst næg þátttaka.
Þátttaka
Þátttökurétt hafa allir gildir meðlimir BMWKrafts.
Hægt er að senda inn myndir á vef keppninnar:
--> http://www.bmwkraftur.is/ljosmynd/ <--