bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

525i e34
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=9226
Page 1 of 2

Author:  zneb [ Tue 08. Feb 2005 15:05 ]
Post subject:  525i e34

Hvernig lýst kraftsmönnum á þennan?

http://www.mobile.de/SIDgBuGxjrI8Rgvu.jlSk0Tow-t-vaNexlCsAsCsK%F3P%F3R~BmSB11Iindex_cgiJ1107877188A1Iindex_cgiD1100CCarX-t-vctpLtt~BmPA1A1B20B20%81W-t-vCaMkMoRDSmVb_X_Y_x_ycletsO~BSRA6A1D3500C525D1995C525HinPublicA2A0C400A0GschwarzA1A0/cgi-bin/da.pl?bereich=pkw&top=7&id=11111111155265888&

Er núna alvarlega farinn að skoða að flytja svona tæki inn helst á næstu mánuðum :D Er einhver hér sem tekur að sér að finna/skoða/flytja inn fyrir smá cash. Finnst heldur mikið að borga 150.000 til Smára Hamburg eða einhvers álíka þar sem budgetið er í kringum 5-600 kallinn.

Skilyrði eru: svartur, leður, 91+ módel, bsk og ekinn kringum/undir 200.000, þjónustubók, smekklegar álfelgur og þannig.

Eða á maður kannski að treysta sölunni fyrir því að fara með bílinn í tékk eða e-ð :roll:

Author:  Kull [ Tue 08. Feb 2005 15:09 ]
Post subject: 

Er ekki málið að finna frekar einhvern hér á landi, til eitthvað af góðum 525 myndi ég halda. Það borgar sig varla að flytja inn svona ódýra bíla nema maður geri þetta sjálfur eða sé að leita að einhverjum eðal eintökum sem fást ekki hér.

Author:  jonthor [ Tue 08. Feb 2005 15:09 ]
Post subject: 

Það er nú eitt stykki M5 til sölu fyrir þennan pening á þessu spjallborði sem uppfyllir öll þessi skilyrði +120hp :D - fyrir svona eldri bíl er ekki vitlaust að skoða heimamarkaðinn vel áður en farið er í að flyta inn.

Author:  jonthor [ Tue 08. Feb 2005 15:12 ]
Post subject: 

lol varst einhverjum sekúndum á undan mér! En ég las aðeins vitlaust, last þetta sem 5-6000€ í innkaupum úti :D

Author:  zneb [ Tue 08. Feb 2005 15:28 ]
Post subject: 

Ég er nú ekki búinn að finna neinn hér sem stendur undir þessum kröfum en er samt búinn að vera að fylgjast mjög vel með bílum til sölu í rúmt ár. Sá sem komst næst því var ekinn 320.000 ´89módel á 350.000 og var því frekar langt utan krafanna. Og einn sem var auglýstur hér en hann var aðeins of dýr. Er líka soldið hrifinn af því að flytja inn að utan því það ætti að vera minna um rið + það að ég er mjög picky á bíla.

Og já mér fannst einhvað bogið við þetta komment jonthor :wink:

Prufa samt að setja inn auglýsingu í óskast keypt uppá gamanið.

Látið mig endilega vita ef þið fréttið af einhverjum sem væri til í að selja/eða sem er á leiðinni út og til í að kíkja á bílasölur 8)

Author:  flamatron [ Tue 08. Feb 2005 16:27 ]
Post subject: 

Afhverju færðu þér ekki 91-92 325i..? það er sama M50B25 vél og í þessum 525i.
nema 325i, bílinn er léttari og finnur meira fyrir aflinu. 8)
hér eru allavegana bíll í þessum verð flokki...
http://www.mobile.de/SID4828sf-zV6K5Q2C ... 155087017&

ABS, ESP, Air-conditioning, Central locking, Immobiliser, Leather interior, Alloy rims, Sunroof, Electric windows

Author:  zneb [ Tue 08. Feb 2005 16:58 ]
Post subject: 

Bíddu, er þessi bíll ekki með ónýta heddpakkningu :?

Er reyndar líka búinn að vera að vellta e36 fyrir mér en þeir eru yfirleitt dýrari og þykja ekki jafn vel byggðir og e34. Mér finnst allavega e34 miklu meiri bíll, svona "solid", þéttari og væntanlega öruggari. Soldið svona "cheap" fílingur í e36 finnst mér (innrétting og plastnotkun) en góður bíll engu að síður :wink: Munar mjög litlu á eyðslu á þessum bílum þrátt fyrir þyngdarmun en þristurinn er jú sprækari. Held líka að ég hafi verið að heyra soldið um leiðindagalla í þessum fyrstu e36. En þar sem e34 bílarnir sem maður fær fyrir þennan pening voru komnir langt inní framleiðsluferlið ætti að vera búið að laga þessa leiðinda framleiðslugalla í þeim.

Einhvern veginn lýst mér bara betur á fimmuna. Búinn að vellta þessu mjög mikið fyrir mér og skoða og íhuga hitt og þetta. Hef komist að því að 525i er sá bíll sem ég ætla að fá mér 8)

Author:  oskard [ Tue 08. Feb 2005 17:09 ]
Post subject: 

þessi bíll virðist nú vera eitthvað mix :lol:

Author:  oskard [ Tue 08. Feb 2005 17:19 ]
Post subject: 

Nei VÁÁÁ tjékkið á vængnum !!!

Author:  Djofullinn [ Tue 08. Feb 2005 17:21 ]
Post subject: 

oskard wrote:
Nei VÁÁÁ tjékkið á vængnum !!!

Jubb hehehe :puke:

Author:  arnib [ Tue 08. Feb 2005 17:21 ]
Post subject: 

oskard wrote:
Nei VÁÁÁ tjékkið á vængnum !!!


Hahah
hann féll svo vel inn í snjóinn :D

Author:  Bjarki [ Tue 08. Feb 2005 18:02 ]
Post subject: 

zneb wrote:
Bíddu, er þessi bíll ekki með ónýta heddpakkningu :?


heddpakkningin er farin
þetta er líka swap þ.e. ekki orginal 325i frá verksmiðju

Author:  Eggert [ Tue 08. Feb 2005 18:42 ]
Post subject: 

Bjarki wrote:
zneb wrote:
Bíddu, er þessi bíll ekki með ónýta heddpakkningu :?


heddpakkningin er farin
þetta er líka swap þ.e. ekki orginal 325i frá verksmiðju


Er þýðingin á því ekki einmitt Umbau?

Djöfull er maður orðinn sleipur í þýskunni.. *sheesh*

Author:  sindrib [ Tue 08. Feb 2005 19:10 ]
Post subject: 

þetta er bara fyndið "vindskeið" :lol:

Author:  Jökull [ Tue 08. Feb 2005 19:15 ]
Post subject: 

Æ vúld læk tú hef a Vindspún :roll:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/