gunnar wrote:Verð nú að vera sammála Ingvari, bílasölur / seljendur bíla geta nú varla verið mikið öðruvísi en hérna heima. Þetta eru málamiðlanir og alltaf hægt að lækka aðeins ef maður er nógu harður við suma.
Eða ég get alla vega ekki séð það öðruvísi. Ekki nema það sé bannað að prútta þarna

Maður sér það augljóslega að bílar sem eru "rétt" verðlagðir fara bara strax og það á uppsettum verðum, ég er búin að missa af þremur bílum núna bara vegna þess að ég vildi ekki segja að ég tæki bílinn, nema vera búin að skoða hann (svo seldust þeir meðan ég var að athuga hvernig ég ætti að koma mér á staðinn). En svo skoðar maður aðra bíla sem maður er ekki til í að borga ásett verð og þá prúttar maður... ekki flókið mál þannig séð.
Þetta fer líka eftir því hvað maður er að kaupa, ef þetta er E30 Coupe eða Cabrio þá kannski þýðir lítið að prútta, nóg af kaupendum af þeim, en ef þetta er t.d. 525 þá er ég handviss að það er hægt að prútta ansi vel enda ÞVÍLÍKT framboð af E34 525.