Alltaf gaman í bílskúrnum!
Ég og vinur minn "þurftum" að þrífa þennan fyrir brúðkaup og ekki var það leiðinlegt! Bíllinn sem hér um ræðir er E65 745! Einhvernveginn lít ég ekki á aðrar bíla eins eftir að hafa skoðað þennan! Við erum að tala um allt það sem ökumaður getur hugsað sér og meira! Farþeginn er með rafstýrð sæti og getur stjórnað rafmagnsgardínum fyrir hliðargluggana aftur í og afturglugganum með því að styðja á hnapp sem er á sama stað á rúðustýringin er í aftursætunum! Einnig er sér sími í þessum bíl fyrir aftursætisfarþega og einnig annar sími fram í!!!! Síðan má nú nefna að það er kælibox þar sem venjulega er skíðpoki í venjulegum bílum! Held að ég hafi aldrei séð annan eins bíl áður.. því miður fékk ég ekki að sitja í honum (fyrir mig) þar sem þessi bíll fékkst að láni. Hefði samt viljað fá einn rúnt á Akureyri takk fyrir.
Btw... afsakið myndirnar. Þær voru eins og þið sjáið í bílskúr. Bíllinn átti að vera hreinn og glæsilegur fram á næsta dag þegar brúðkaupið fór fram.
Btw... afsakið myndirnar. Þær voru eins og þið sjáið í bílskúr. Bíllinn átti að vera hreinn og glæsilegur fram á næsta dag þegar brúðkaupið fór fram.