Page 1 of 1

Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Wed 30. Oct 2013 19:32
by Davíð
Rakst á þessa í Motortown Arlandastad rétt fyrir utan Stokkhólm í Svíþjóð. Væntanlega verða notaðir í auglýsingar og fleira, þar sem þeir eru á þýskum númerum og bíllinn er ekki enn kominn í umboðin.

Finnst hann bara mjög flottur, og hlakka til að prufa :D

.
Image

Image

Image

Image.

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Wed 30. Oct 2013 19:57
by thorsteinarg
Huuuge nýru :shock:

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Wed 30. Oct 2013 21:42
by rockstone
Persónulega finnst mér nýjasta x5 boddíið ekki flott, minnir mig á x1 og x3 sem ég þoli ekki útlitslega! E70 er svo vel heppnaður!

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 13:09
by ppp
Æh, þessi er ekki fallegur. Og virkar pínulítill eitthvað. :thdown:

Ég sé fyrir mér að hann fái þokkalegt facelift.

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 13:51
by SteiniDJ
Þokkalega skrítin eintök þarna. Felgurnar hverfa alveg inn í brettin. Svo er ég persónulega ekki að meta afturhlerann, virkar svolítið SsangYong-legur. :lol:

Örugglega betri í persónu.

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 14:56
by Hreiðar
Mér finnst hann geggjaður :shock: og örugglega enn flottari í persónu!

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 16:44
by Haffi
Langflottasti X5-inn sem hefur komið út! Ekki spurning :thup:

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 18:22
by Davíð
Ég þurfti aðeins að horfa þegar ég sá þá úr fjarlægð, fannst þeir einmitt virka frekar litlir úr fjarlægð. En held hann sé nú ekkert minni samt. Þetta voru nokkrar útgáfur þarna, þessi grái sennilega minnst búinn. Hinir betur búnir, allt öðruvísi stuðarar á þeim ofl. Ég var á hraðferð og náði bara ekki að skoða betur, en geri við fyrsta tækifæri. Þeir koma svo víst í umboðin hér í Sverige eftir 2 vikur.. ásamt BMW i3 fljótlega líka.

Persónulega kann ég mun betur við E53 bílinn en E70. Og finnst þessi mun flottari en E70.

Re: Nýji BMW X5 (F15)

PostPosted: Fri 01. Nov 2013 19:15
by fart
Það eru 3 útgáfur + ///M

Blái er Msport
Hvíti (fyrsti) er M50d, sést á auka listanum sem er á loftinntakinu á stuðaranum

F15 er örlítið stærri en fyrirrennarinn.

Minn verður Msport