Page 1 of 3

ÁG bílasýning ???

PostPosted: Tue 25. May 2004 20:07
by jens
Veit einhver hvað var í gangi á síðasta föstudag í ÁG bílaverkstæðinu, þar var víst einhver sýning og þar var víst 730i ??? ca '85 allur nýtekinn í gegn, sprautaður og alles með innkaupalista á hliðunum og neon í huddinu. Hvaða bíll er þetta ???.

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:02
by Jón Ragnar
Þetta VAR ágætur E32 735i, búið að taka leðrið og setja ljótt áklæði og svona viðbjóð

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:05
by gunnar
Held ég hafi séð hann í dag og guð minn góður hvað hann er ljótur

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:07
by gunnar
Image

Ég finn fyrir eitthverri óstjórnlegri löngun til að æla á þennan bíl.. Ég veit ekki alveg af hverju

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:12
by fart
HVERNIG VÆRI AÐ VARA MANN VIÐ ÁÐUR EN SVONA MYND ER SETT HÉR INN. :evil:

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:24
by Chrome
fart wrote:HVERNIG VÆRI AÐ VARA MANN VIÐ ÁÐUR EN SVONA MYND ER SETT HÉR INN. :evil:

:pale: Ojjojjojojjj!!! :puke:

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:33
by iar
Slakið nú aðeins á drullunni strákar...

Þetta er kannski ekki allra smekkur en bíllinn virðist vera vel með farinn, lakkið amk. fjarska fallegt á myndum, fínar felgur og glæru stefnuljósin yngja bílinn mikið upp.

Þó límmiðar og tilheyrandi sé sjaldséð á bimmum og fæstum hér virðist finnast flott þá er óþarfi að rakka svona svakalega niður annarra manna bíla. Mér finnst t.d. miklu sorglegra að sjá ryðgaða, sjúskaða og drulluskítuga (að utan og innan) bimma en þennan sem eigandinn virðist þó hafa áhuga á að halda við og gera eitthvað fyrir.

PostPosted: Tue 25. May 2004 21:49
by jens
Takk strákar fyrir skjót viðbrögð, vissi að ég gæti treyst á að fá info um bílinn hér.
Mér var sagt að þetta væri eldri bíll og það kveikti í mér, en hef það eftir ( nokkur góður ) leiðum að bíllinn sé ný sprautaður og mjög vel á sig kominn, en ég er ekki að fíla lookið á honum með innkaupalistann en það er sagt að ofan í huddinu sé sérstaklega snyrtilegt, en að það sé neon allan hringinn í því :?

PostPosted: Tue 25. May 2004 22:09
by fart
Heyrðu, fáum Davíð Odds til að setja lög á að tjá skoðanir sínar um bíla. :lol:

Kanski full djúpt í árinni tekið hjá mér áðan, en það þurfti að beita svokallaðri "shock treatment" 8)

PostPosted: Tue 25. May 2004 22:54
by jens
fart skrifaði:
Code: Select all
HVERNIG VÆRI AÐ VARA MANN VIÐ ÁÐUR EN SVONA MYND ER SETT HÉR INN.

Ég er eiginlega sammála þér í þessu...

PostPosted: Tue 25. May 2004 23:01
by gunnar
ég held ég sé ekki að fara með fleipur þegar ég segi að það séu körfustólar svo í þessum dýrindis bíl 8)

PostPosted: Wed 26. May 2004 00:04
by ///MR HUNG
Og kappinn var í T.B að pæla í nítro um daginn :lol2:

PostPosted: Wed 26. May 2004 01:23
by Stefan325i
gunnar wrote:ég held ég sé ekki að fara með fleipur þegar ég segi að það séu körfustólar svo í þessum dýrindis bíl 8)


ekki körfustólar heldur eithverskonar sætiscover sem eiga að vera eins eithvað sportlegt, ruggustóllin hennar ömmu er sportlegri en þess cover.

það er nú ekki mikið sem þarf til að eiðinleggja bíla, eg held að þessi eigi metið, Límiðar og "sport sætisáklæði" eina sem var flott við þennan bíl voru dökku framljósin, en þar þarf ekki mikið til þess að laga greiið.

PostPosted: Wed 26. May 2004 11:32
by gstuning
Það hvíslaði að mér lítill fugl að flestir bílarnir þarna eru skráðir tjónabifreiðar,, einn meira að segja kom á númer 2dögum fyrir sýninguna

Þeir klikka aldrei í Á.G

PostPosted: Wed 26. May 2004 18:18
by Thrullerinn
Talandi um ÁG, ég forvitnaðist hvað væri metið í eyðslu í krónum talið
í eina hondu. Nefndar voru upphæðir sem hljóðuðu upp á rúmar 2 millur
í tjúningar og annað plast... Ný Vti honda kostaði 1800-1900 þús. #-o