bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Prófaði einn hressann bimma
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=5186
Page 1 of 1

Author:  benzboy [ Fri 26. Mar 2004 14:51 ]
Post subject:  Prófaði einn hressann bimma

Loksins gafst mér tækifæri til að prófa annan af tveimur Z4. Það var þessi grái sem ég komst í tæri við í gær. Eins og við var að búast var þetta afar skemmtileg reynsla, bráðsprækur og liggur gjörsamlega eins og klesssa. Þetta eintak er sjálfskipt en í S mode breytir það ekki miklu þar sem að hann skiptir sér á rauða strikinu - svo er auðvitað hægt að skipta manuelt. Það væru kannski ýkjur að segja að bíllinn sé rúmgóður (þar sem hann er jú bara tveggja manna) en það er hinsvegar nóg pláss fyrir þá tvo sem komast fyrir.
S.s. snarpur, villtur sportari :rofl:

p.s. Ég held að hann sé að fara í sölu ef einhvern langar í leikfang fyrir sumarið

Author:  Kristjan [ Fri 26. Mar 2004 15:23 ]
Post subject: 

Er prísinn á þessu ekki sky high?

Author:  benzboy [ Fri 26. Mar 2004 17:00 ]
Post subject: 

Ég veit ekki alveg hvað verður sett á hann, væntanlega miðað við verð á nýjum og svo afföll eins og gengur og gerist. Þetta er auðvitað ekki alveg gefins. Held að hann sé ekinn tæpl. 10 þús og veit að það hefur verið farið vel með þennan bíl.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/