bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Verðlagning á 1997 M3 321hp
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=4791
Page 1 of 2

Author:  fart [ Mon 01. Mar 2004 19:52 ]
Post subject:  Verðlagning á 1997 M3 321hp

hvað værum við að tala um í verði fyrir þannig bíl hér heima.. bíll ekinn c.a. 100-150þús 4ra dyra.

Ef ég fer frekar imbamatic leið þá fæ ég 2.5mkr söluverð, sem mér finnst frekar lág tala.. hefði haldið nærri 3mkr.

2004 325i E46 kostar 4.4mkr
2004 M3 E46 kostar 7.8mkr

BGS gefur 1360þúsund fyrir E36 325i 4dyra ekinn 100þús

Sem þýðir að E36 325/E46 325 = c.a. 0.33

2004 M3 E46 = 7.8mkr
sem þýðir að 1997 E36 M3 er c.a. 7.8x0.33 = 2.560

AM I CRAZY?

Author:  hlynurst [ Mon 01. Mar 2004 20:04 ]
Post subject: 

2,5-3 mills... fyrir góðan bíl.

Author:  hlynurst [ Tue 02. Mar 2004 08:51 ]
Post subject: 

Þessi er t.d. á þokkalegu verði.. færð meira að segja vsk til baka. Í kringum c.a. 2,5 mills... ertu að spá?

Author:  fart [ Tue 02. Mar 2004 09:15 ]
Post subject: 

þetta er akkúrat bíllinn sem ég var að skoða..

Liturinn er réttur
dyrafjöldi er réttur
og verðið er þokkalega sanngjarnt

en..... það er bara eiginlega of stutt í 1998-2000 M5 ekinn svipað og þessi.

Author:  Jss [ Tue 02. Mar 2004 09:18 ]
Post subject: 

Mér finnst þessir bílar vera overpriced, hverjir eru á sama máli?

Author:  hlynurst [ Tue 02. Mar 2004 09:25 ]
Post subject: 

Þessir bílar eru ekki ódýrir... en ég væri til í svona. Eða jafnvel Z3 M coupe. :D

Author:  gstuning [ Tue 02. Mar 2004 09:27 ]
Post subject: 

Þið hugsið þetta ekki rétt

Veljið þið bíla eftir því hvað þeir kosta og hvað næsta módel kostar fyrir ofan það?????

Ef þig langar í E36 M3 þá kaupirru svoleiðis
ef þið langar í E39 M5 þá kaupirru svoleiðis
E39 M5 er ekki skref upp frá E36 M3,


þeim er ekki hægt að líkja samann,,

Author:  Jss [ Tue 02. Mar 2004 09:36 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Þið hugsið þetta ekki rétt

Veljið þið bíla eftir því hvað þeir kosta og hvað næsta módel kostar fyrir ofan það?????

Ef þig langar í E36 M3 þá kaupirru svoleiðis
ef þið langar í E39 M5 þá kaupirru svoleiðis
E39 M5 er ekki skref upp frá E36 M3,


þeim er ekki hægt að líkja samann,,


Ég geri mér alveg grein fyrir því, tók bara dæmi um þetta um daginn, sjálfum finnst mér E39 M5 vera miklu meiri og meira spennandi bíll en E36 M3.

Author:  fart [ Tue 02. Mar 2004 09:37 ]
Post subject: 

en af manni langar í bæði M3 og M5.. en hefur bara budget í einn, þá er spurning um að taka betri kaupin.

M3 er ekki þannig bíll að verðið sé réttlætanlegt miðað við verðið á E39 M5, þ.e. þarna úti.

En hérna heima virðist vera mun meiri verðmunur á milli M3 E36 og M5 E39.

Author:  Gunni [ Tue 02. Mar 2004 09:41 ]
Post subject: 

Fart ef þú kaupir þennan E36 m3 bíl þá skal ég kaupa hann af þér eftir svona 2 - 2,5 ár. OK ?

Author:  fart [ Tue 02. Mar 2004 09:45 ]
Post subject: 

á hvaða verði?

Þetta hefur lengi verið draumabíllinn minn.

Author:  Raggi M5 [ Tue 02. Mar 2004 09:47 ]
Post subject: 

fart wrote:
en af manni langar í bæði M3 og M5.. en hefur bara budget í einn, þá er spurning um að taka betri kaupin.

M3 er ekki þannig bíll að verðið sé réttlætanlegt miðað við verðið á E39 M5, þ.e. þarna úti.

En hérna heima virðist vera mun meiri verðmunur á milli M3 E36 og M5 E39.


Enda er líka miklu meiri búnaður í E-39 M5

Author:  fart [ Tue 02. Mar 2004 09:49 ]
Post subject: 

Ég held að þið séuð að misskilja mig.

Verð á E36 M3 nýjustu árgerðirnar (1997 c.a.) virðist vera hlutfallslega hærra úti í þýskalandi en verðið á M5 E39. Kanski vegna þess að framboðið er meira á E39 M5.

En þessi E36 er geðveikur.

Author:  iar [ Tue 02. Mar 2004 12:18 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Veljið þið bíla eftir því hvað þeir kosta og hvað næsta módel kostar fyrir ofan það?????


Ég heyrði einmitt í einum sem fannst verðið á X3 of mikið svo hann sagði að hann myndi frekar fá sér LandCruiser. Duh... ég var hálf orðlaus... :-k

En annars varðandi M3 vs. M5 þá myndi ég frekar taka M3 tveggja dyra en ef mig vantaði 4 dyr myndi ég taka M5.

Author:  bebecar [ Tue 02. Mar 2004 12:45 ]
Post subject: 

E36 bíllinn hefur nú sennilega fengið sístu dómana af öllum M bílunum þrátt fyrir að hann sé góður.

Hann er hinsvegar ennþá geysilega flottur og er í mátulegri stærð og mjög "heitur" bíll.

E39 M5 er svo ALVEG pottþétt MIKIÐ dýrari í rekstri en líka bara allt önnur græja!

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/