bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

E36 m60/62
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=47842
Page 1 of 2

Author:  íbbi_ [ Thu 28. Oct 2010 22:11 ]
Post subject:  E36 m60/62

sumir hafa spáð í þessu swap-i, og eflaust komin einhver vitneskja einhverstaðar,

mér hefur orðið mjög lengi langað að eiga E36 með v8, þá 4.0l eða 4.4l,

hef heyrt að vandamálin séu m.a mótorfestingar, olíupanna, og gírkassi,

6 gíra kassinn þykir of dýr, en menn hafa þá bent á 5gíra kassa úr E34 530 m60, eða jafnvel E39 535,
fyrir mér er þetta ekki vandamál þar sem ég vildi hafa hann sjálfskiptan, og með orginal skiptinguni við mótorinn,

olíupannan er ves, man eftir einum sem ætlaði í svona hérna heima, og alpina vildi ekki selja honum pönnu, og hartge bauð ekki upp á hana, lausnin virðist hinsvegar vera sú að setja dry sump kerfi í þá, það kostar minna en aftermarket panna, og virkar vel,

bremsubooster, í flestum bílum sem ég hef séð með m60/62 swap er búið að færa hann framan í húddið eins og í E39/E38 sem komu með þessari vél orginal, er þetta e-h vesen? eða gengur búnaðurinn úr donernum yfir án vandræða?

ég hef heyrt að það sé bara bras að reyna við m62b44tu, þá aðalega vegna drive by vire og vanos, 96-99 m62 sé málið, og m60 mótornum fylgi minnst elektró ves,

hefði gaman að fá líflegar umræður þetta, hef haft þessa hugmynd í núna 5ár+ og er raunverulega farið að langa að prufa,

p.s getið alveg eins slept því að fleima yfir að ég vilji þetta ssk, það eru ástæður fyrir því og algjörlega astæðulaust því að benda mér á það

Author:  íbbi_ [ Thu 28. Oct 2010 22:12 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

þess má kannski geta að m62b44 er léttari en m50b25

Author:  gstuning [ Thu 28. Oct 2010 22:23 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Sérsmíðuð panna og pickup verður alltaf ódýrar enn dry sump kerfi.

Mótorarmar eru svosem ekkert vesen, bara smíða nýja.

Pústið er svo alltaf vesen líka.

Rafmagnið er spurning uppá hvað tölvan vill sjá í samskiptum við kannski body control module og svoleiðis hluti.
Drive by wire er í sjálfu sér ekkert vesen því þú myndir bara færa drive by wire skynjarann úr donor bíl í þinn bíl á pedallann þar.

Af því að þú vilt sjálfskiptingu þá þarf skipting að vera með tölvu sem getur átt rétt samskipti við gírkassa tölvuna.


Mér sýnist þetta einna helst snúast um að hafa heilann donor bíl ef þú vilt nýrri vél og sjálfskiptingu.

Ég myndi halda að E34/E32 V8 style bremsu booster setup væri helsta lausnin þar.

Author:  íbbi_ [ Thu 28. Oct 2010 22:33 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

já ég hafði spáð í pústinu, en hafði séð fyrir mér að með orginal greinum væri hægt að hafa nokkurnskonar Y pípu, s.s rörið niður öðru megin og rör frá hinni greinini, en það er samt spurning um hvernig skiptingin liggur í hvort það sé hægt að komast framhjá,

ég sá að kanarnir eru með dry sump reddingu á um $400, og modda svo orginal pönnuna.

var einmitt að spá í hvernig það væri með rafmagnið fyrir skiptinguna, er hægt að nota tölvurnar úr donornum og pinna inn á þær rásir sem maður þarf að nota? einhevrstaðar las ég svo að það væri mun minna rafmagnsvesen ef maður væri með m60 og non steptronic skiptingu,

er ánægður með þyngdina á m60/62, hafði séð fyrir mér að hættan væri sú að bíllinn væri alltaf framþungur og vesen að finna gott fjöðrunar combo,

svo er spurning með skiptiarma útfæringu, hversu mikið þarf að modda,

Author:  fart [ Fri 29. Oct 2010 06:52 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Þú notar Alpina pönnu og mótorfestingar, dýrt en lang einfaldast.

http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... p?t=887016

Ágætis samanburðarmynd á DOCH V8 og gamaldags V8

Image

Author:  bimmer [ Fri 29. Oct 2010 08:01 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Minnir að Oliver hafi verið að tala um að panna af einhverri af nýlegu
vélunum frá BMW (man ekki hvaða) dugaði þannig að maður þyrfti ekki
Alpina $$$$$$ pönnuna.

Author:  íbbi_ [ Fri 29. Oct 2010 11:11 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

fyndið að sjá munin á heddunum, ls1 er líka svona lítill, ég var einu sinni með v8 vél úr 560sec benz hliðina á gömlum pontiac mótor sem ég átti, 6.6l big block, og pontiac vélin virkaði eins og v6 hliðina á benz mótornum,


það væri gaman að vita um hvaða pönnu ræðir, ég er búinn að finna skref fyrir skref leiðbeiningar, þar sem gaur swapaði 4.4l yfir í us m3, og var ósáttur við powerið og fór strax í ls1

maður þyrfti að finna mynd af pústsetupi á svona bíl, og hvernig er gengið frá skiptinguni

alpina pannan og armarnir eru líklega dýrari en ég myndi geta ef ég færi út í svona

Author:  fart [ Fri 29. Oct 2010 13:45 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

íbbi_ wrote:
fyndið að sjá munin á heddunum, ls1 er líka svona lítill, ég var einu sinni með v8 vél úr 560sec benz hliðina á gömlum pontiac mótor sem ég átti, 6.6l big block, og pontiac vélin virkaði eins og v6 hliðina á benz mótornum,


það væri gaman að vita um hvaða pönnu ræðir, ég er búinn að finna skref fyrir skref leiðbeiningar, þar sem gaur swapaði 4.4l yfir í us m3, og var ósáttur við powerið og fór strax í ls1

maður þyrfti að finna mynd af pústsetupi á svona bíl, og hvernig er gengið frá skiptinguni

alpina pannan og armarnir eru líklega dýrari en ég myndi geta ef ég færi út í svona


Þú átt eftir að reka þig á það sama, og því ágætt að sleppa fyrsta skrefinu. Af hverju að fara í V1.0 þegar V2.0 er komið?

Author:  slapi [ Fri 29. Oct 2010 14:20 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Það er nátturulega spurning hvað menn ætla að nota þetta í.
Ég persónulega væri alveg til í M62 E36 automatic getriebe sem daily en það yrði nátturulega aldrei einhver græja þó hann yrði aldrei eitthvað leiðinlegur.

Ef menn vilja eitthvað power útur þessu þá er LS1 vissulega valkostur eins ógeðslegt og það er.
Og örugglega frekar ódýr valkostur , en samt ógeðslegur :lol:

Author:  fart [ Fri 29. Oct 2010 14:24 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Ekki E36 (E46) og ekki LS1 heldur LS3, alveg ógeðslegt.. :?

http://forums.bimmerforums.com/forum/sh ... ?t=1548056

Image

Image

Author:  slapi [ Fri 29. Oct 2010 14:27 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Meðaðvið myndirnar úr húddinu er þetta örugglega eitthvað haugtjónað. :lol:


Og mótorinn ógeðslegur :lol:

Author:  íbbi_ [ Fri 29. Oct 2010 16:40 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

það er nefnilega málið, hugmyndin er í raun bíll sem virkar stock, og lúkkar stock, engin hávaði, ekki slammaður í götuna, bara kramið úr 540 í E36, barnastóll, smekklegar felgur og M stuðari og frábær dayle driver. og bíll sem ætti að vera með algjörlega ásættanlega bilanatíðni, og vera rauverulega usable

hvort ég geri þetta er annað mál, en þetta er búið að velkjast um það lengi að mig er farið að langa að reikna dæmið raunverulega út

Author:  -Siggi- [ Sat 30. Oct 2010 00:46 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

Þetta meikar bara ekkert sens ef að þú ert ekki að leita að performance græju heldur bara DD.
Þá notarðu bara 540 eða 325.

En auðvitað er allaf gaman að gera eitthvað öðruvísi.

Author:  íbbi_ [ Sat 30. Oct 2010 00:49 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

þetta er nú væntanlega ekki alveg máttlaust.. en já rétt mikil vinna m.a við útkomu, en hugsa að svona bíll vinni mjög vel með réttu drifi, og sé skemmtilegur í akstri.

en jújú svo er 325 alveg fínt

Author:  Kristjan PGT [ Sat 30. Oct 2010 01:16 ]
Post subject:  Re: E36 m60/62

íbbi_ wrote:
þetta er nú væntanlega ekki alveg máttlaust.. en já rétt mikil vinna m.a við útkomu, en hugsa að svona bíll vinni mjög vel með réttu drifi, og sé skemmtilegur í akstri.

en jújú svo er 325 alveg fínt


Fáranlega anal off topic en skammstöfunin "m.a." stendur fyrir "meðal annars" ekki "miðað" :D Sé þig gera þetta stundum og langaði að benda þér á þetta :oops:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/