bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

320d vs 330d E46
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=43216
Page 1 of 1

Author:  fart [ Wed 24. Feb 2010 10:26 ]
Post subject:  320d vs 330d E46

Ég hef verið að skoða kaup á einum sparibauk á heimilið. Verðið 5000-8000 euro.

Það sem hefur komið upp í hugan er eitthvað franskt og lítið, Mino One / Cooper, Fiat 500 (líklega of dýr) og svo datt mér í hug 320d/330d, en það er hægt að fá þannig bíla (kringum 2000módel) ekna slatta.

Þá er spurningin þessi, hvað halda menn um svona diesel BMW og 150.000km akstur. Is it worth it?

Author:  Einarsss [ Wed 24. Feb 2010 10:29 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Ef það er búið að skipta um túrbínuna þá ætti þetta að vera nokkuð solid

Author:  gunnar [ Wed 24. Feb 2010 10:52 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Mig grunar að svona Tdi bimmar endist mun lengur þarna úti í hitanum og löngu vegalengdunum heldur en hér heima í kuldanum og öllum köldu störtunum og stuttu keyrslunum..

Author:  JonFreyr [ Wed 24. Feb 2010 11:07 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Grunar að 320d væri sniðugur í snattið, veit af reynslu að 330d mökkvinnur miðað við grútarbrennara og þess vegna er/væri ökumaðurinn kannski að vesenast við að hemja sig. Frekar taka eitthvað sæmilega máttlaust og fá þannig meiri sparnað svona eldsneytislega séð, ekki það að 320d sé steingeldur en grunar að það yrði minna um spyrnur á milli ljósa og þess háttar. Svo er hann að öllum líkindum ódýrari en 330d sem ætti að gera 320d enn fýsilegri.

Svo eru fleiri bílar sem eru fínir í snatt og styttri túra, Suzuki Swift og fleiri í þeim stærðarflokki. En er þetta ekki alltaf spurning um að gúggla bilanatíðni og kostnað per/km sem dæmi?

Author:  Einarsss [ Wed 24. Feb 2010 11:20 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

ég var amk alveg sáttur með vinnsluna í 320d touring sem ég átti :) fínt tog í þessu

Author:  Gunnar Þór [ Thu 25. Feb 2010 11:18 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Ég er búinn að eiga 330d í tvö ár...mjög sáttur. Fullt af plássi (touring) og sæmilega sprækur (sérstaklega eftir MrX remap) og eyðslan undir 10l innanbæjar og um 6l á langkeyrslu. Ideal alhliða bíll.

Ég prufaði 320d þegar ég keypti þennan, og var ekki impressed...

Author:  ///MR HUNG [ Thu 25. Feb 2010 19:00 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Þeir eru báðir betri.

Author:  Hreiðar [ Thu 25. Feb 2010 23:03 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Fínt að vera á 320d, eyðir engu og aflið er ágætt. Fínt tog í þessu!

Author:  20"Tommi [ Fri 26. Feb 2010 12:02 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

330d sæmilega sprækur eftir MR.X ??

Er þetta ekki hátt í 250 hö. og 500nm. ?

Það ætti nú að koma svona smá tík úr sporunum held að það séu fáir 3 L bensin bílar sem hafa í hann.

320d er alveg ótrúlega sparsamur bíll og alveg nóg afl í snattið.

Author:  Gunnar Þór [ Fri 26. Feb 2010 14:06 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

20"Tommi wrote:
330d sæmilega sprækur eftir MR.X ??

Er þetta ekki hátt í 250 hö. og 500nm. ?

Það ætti nú að koma svona smá tík úr sporunum held að það séu fáir 3 L bensin bílar sem hafa í hann.



Hann er original 184HP þannig að ég held að 250 sé frekar óraunhæft, en X fullyrti að togið færi úr 390NM í 500+ (enda fann maður verulegan mun eftir remappið). MR.X vildi meina að það væri hægt að kreista ótrúlega mikið tog úr þessum vélum en hann vildi ekki ganga lengra af reliability ástæðum.

Author:  JonHrafn [ Sun 28. Feb 2010 22:08 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Þessir 320d tussast alveg áfram, virkilega skemmtilegir bílar. En eins og áður var nefnt ,,, þá endist túrbínan 150+ .. þannig að ef það er búið að skipta um túrbínu þá ættiru að vera safe,,, en ég hef líka átt einn keyrðan 220 og hann var ennþá með orginal turbo. Lilja systir var í 230 eða 240 og þá var bínan búin.

En talandi um tjúningar, þá lét ég hvarfakútana hverfa og setti rör í staðin, og maður finnur greinilegan mun, maður virðist fá alvöru torque fyrr, á lægri snúning that is. Mr.x er næst á dagskrá.

Author:  ppp [ Wed 03. Mar 2010 20:24 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

330d eru alltof skemmtilegir. Svolítið steep túrbolagg í þeim ef þú ert ekki vanur því, en vinnslan er ansi unaðsleg.

Eða eins og einn vinur minn sem hefur nú átt þónokkur amerísk V8 skrýmsli sagði þegar hann prófaði hann: "Tilhvers í andsk. þarft þú að tjúna þennan bíl???"

Svo skemmir ekki að sjá eyðsluna vel undir tveggja stafa tölu þegar maður hemur sig aðeins. (Það er oft erfitt.)

Author:  jonthor [ Thu 04. Mar 2010 11:19 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Ef þú ætlar í 320d þá mæli ég með að finna amk 2002 bíl, það er þó nokkur munur á vélunum þar á milli, ef ég man rétt:

Pre-2002 280nm / 136hp
Post 2002 330nm / 150hp

Author:  ppp [ Thu 04. Mar 2010 23:59 ]
Post subject:  Re: 320d vs 330d E46

Var að skutlast í bænum núna áðan á 330d og mundi eftir þessum þræði þannig að ég resetaði eyðslumælinum eftir að vélin var búin að hitna aðeins, og eftir rúma 90min af keyrslu á höfuðborgarsvæðinu í 3.5°c hita og bleytu var eyðslan 7,2L. Þetta var örugglega svona 50/50 hraðbraut/íbúðarhverfi, og ég tók smá blýfót á ljósum hér og þar. Og já bíllinn er automatic.

Þetta eru sparibaukar þegar vélin er ekki skítköld.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/