bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Prófaði alveg svakalega skemmtilegan bíl áðan
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=4133
Page 1 of 2

Author:  Svezel [ Thu 22. Jan 2004 15:13 ]
Post subject:  Prófaði alveg svakalega skemmtilegan bíl áðan

Ég er ennþá með nettan skjálfta eftir vægast sagt skemmtilega ökuferð á BMW Z3 Coupe 2.8. Maður var búinn að lesa að fólk hefði mjög skiptar skoðanir um þessa bíla en ég gersamlega féll fyrir honum.

Mér hefur alltaf þótt þeir mjög töff í útliti með þetta langa húdd og brettaútvíkkanirnar að aftan en hafði aldrei prófað svo ég vissi ekki hvernig var að aka þessu. Þar kom það besta við þennan bíl því það er alveg svakalega gaman að keyra þetta. Liggja vel, mjög þægileg aktstursstaða, fínn krafturt (ekkert brjálað en sant mjög fínn) og drift on demand!!

Ég þrykkti þessu alveg hægri vinstri og get bara rétt ímyndað mér hvernig er að keyra hann á góðum sumardekkjum því hann var alveg svakalega skemmtilegur á nöglunum. Dálítið hrár eins og ég vil hafa bíla í dag, maður heyrði vel í vélinni, vélin alveg frábær og rassinn alltaf til að henda sér aðeins til á gjöf.

Uss ég er alveg orðinn kex eftir aksturinn #-o

Author:  bebecar [ Thu 22. Jan 2004 15:24 ]
Post subject: 

Þetta er nú einn af mínum uppáhalds bimmum en maður er sosem ekekrt að flagga því þar sem þetta er of dýrt fyrir mig. Ég fékk að keyra M Coupé hér um árið og aflið í þessu er ógurlegt og þetta er mikið tæki.

Ég hef alltaf fílað þessa bimma og þetta er eiginlega síðasti HARDCORE bimminn...

Author:  fart [ Thu 22. Jan 2004 15:30 ]
Post subject: 

Er M-Coupe ekki einn sneggsti BMW frá upphafi milli A og B... fyrir utan M5 E39 og CSL (í þurru)

Author:  Svezel [ Thu 22. Jan 2004 15:33 ]
Post subject: 

M-Coupe átti lengi sneggsta tíman fyrir óbreyttan BMW la Nurburgning.

Ég prófaði náttúrlega bara 2.8 en hann er bara damn sweet svo ég get rétt ímyndað mér hvernig M-Coupe er. Held samt að 2.8 henti betur sem eini bíll, ekki eins svakalega hörð fjöðrun

Author:  bjahja [ Thu 22. Jan 2004 15:41 ]
Post subject: 

Skelltu þér bara á svona maður.........og gera Z3coupe racer :twisted:

Author:  bebecar [ Thu 22. Jan 2004 15:42 ]
Post subject: 

Það var nú einmitt það eina sem ég gat fundið að honum - ég var að drepast í bakinu eftir ferðina og með hausverk eftir adrenalín flæðið (sem í raun var meira en á Saxo rallýbílnum)...

Það fyndnasta er að þessi bíll hafði verið keyptur fyrir einhverja frú og hún gafst auðvitað upp á bílnum!

Author:  Haffi [ Thu 22. Jan 2004 15:45 ]
Post subject: 

úffffffffffffffffffffffffffff mig langar svo í Mcoupe !!!

Author:  fart [ Thu 22. Jan 2004 15:59 ]
Post subject: 

Quote:
Það fyndnasta er að þessi bíll hafði verið keyptur fyrir einhverja frú og hún gafst auðvitað upp á bílnum!


OMG.. ! þessi bíll er hannaður fyrir karlmenn, eins og Z3 er fyrir konur. Sama dæmi í gangi með MR. 911 Turbo vs MRS.Boxter

Author:  bjahja [ Thu 22. Jan 2004 16:03 ]
Post subject: 

fart wrote:
Quote:
Það fyndnasta er að þessi bíll hafði verið keyptur fyrir einhverja frú og hún gafst auðvitað upp á bílnum!


OMG.. ! þessi bíll er hannaður fyrir karlmenn, eins og Z3 er fyrir konur. Sama dæmi í gangi með MR. 911 Turbo vs MRS.Boxter

Það eru nú skiptar skoðanir um það.......sumir segja að boxterinn sé eins og gömlu góðu 911 voru. En ég hef ekki keyrt neinn porsche, þannig ða ég get ekkert sagt ;)

Author:  bebecar [ Thu 22. Jan 2004 16:04 ]
Post subject: 

Reyndar er Boxter nú sennilega besti akstursbíllinn í núverandi line up hjá þeim... það vantar bara meira afl í hann. Ruf bjargar því hinsvegar...

Já, en hitt er rétt Z3 er meira fyrir konur og hárgreiðslumenn en Coupe er fyrir harðjaxla!

Author:  Svezel [ Thu 22. Jan 2004 16:27 ]
Post subject: 

Hmm lítur út fyrir að maður verði að ganga á íbúðarsjóðinn...

Ég veit ekki með ykkur en ég sé bara ekkert kvenlegt við Z3 Coupe og veit ekki hvað það ætti að vera. Hann yrði a.m.k. ekki kvenlegur þegar ég væri kominn með 10" breiðar felgur að aftan og 220 hö í húddinu :roll:

Author:  bjahja [ Thu 22. Jan 2004 16:30 ]
Post subject: 

Z3 coupe er ekki kvennlegur, hann er geggjaður 8) En venjulegur Z3 er önnur saga

Author:  bebecar [ Thu 22. Jan 2004 16:33 ]
Post subject: 

Ég held að allir séu að meina að Z3 Cabrio sé kvenlegur en Coupé sé HARÐAJAXLA!

Allavega meinti ég og skrifaði það :wink:

Author:  gstuning [ Thu 22. Jan 2004 16:36 ]
Post subject: 

DUDE,

Þú verður að kaupa þennan bíl, ég sver að þú verður ekki ósáttur,

Drift on demand er útaf ekki fullkomna E30 aftur endanum, sem eykur bara á fun factorinn,

Author:  Svezel [ Thu 22. Jan 2004 16:42 ]
Post subject: 

He he jæja það er ágætt :D

Já þú og Stebbi verðið þá að hjálpa mér að tjúna þetta í eitthvað almennilegt :wink:

Jæja farinn að skoða yfirlitið :roll:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/