Page 1 of 2

Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 09:10
by Nökkvi
Auto Motor und Sport var að fara yfir hvað helst er að koma frá BMW á næstunni.

Ný fimma kemur á næsta ári:
Image
Image

Ný sexa kemur 2012 og mun byggja á tækni úr fimmunni:
Image
Image

Líklegt er að Z2 verði byggður á grunni ássins:
Image

Svo er líklegt að þið hafið séð M1 Vision sem var sýndur í Frankfurt í haust. Það er samt alls óvíst hvort hann verði smíðaður:
Image

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 09:19
by Einarsss
það sem ég var að fíla við E60 var að framljósin gerðu bílinn grimman.. veit ekki alveg um þau á nýju fimmuni, minnir helst á subaru legacy framljós

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 09:43
by kalli*
Nýrun á þessum bílum eru svo stór að maður sér varla bílana sjálfa :aww: Annars alls ekki slæm útlit, góður punktur frá einari líka.

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 11:07
by Saxi
Sammála Einari með E60

Hrikalega Benz legur framendi á þessari fimmu

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 12:38
by Hannsi
Mér finnst nýrunn verða alltaf stærri og stærri :shock:

Hvernig verður þetta árið 2067? hvort nýra 40-50cm að lengd :hmm:

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 13:10
by kalli*
Hannsi wrote:Mér finnst nýrunn verða alltaf stærri og stærri :shock:

Hvernig verður þetta árið 2067? hvort nýra 40-50cm að lengd :hmm:


Nýrun verða yfir allann frampartinn og ljósin verða bara inn í nýrun :lol:

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 17:11
by DabbiHan
Að mínu mati eru framendarnir á 5unni og 6unni alveg mökkljótir :roll:
En afturendarnir hinsvegar aaalgjör bjútí

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 22:34
by hjolli
þeir eru allavegana ekki á réttri leið með þessa 5u þarna.. miðað við e60 :l

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Thu 19. Nov 2009 23:14
by Hreiðar
Ég held samt að þetta sé eitthvað sem maður venst... Man þegar að E60 var glænýr, skal viðurkenna það að mér fannst hann alveg skelfilega ljótur, en í dag finnst mér hann bara gullfallegur.

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Fri 20. Nov 2009 04:01
by SteiniDJ
Mér fannst nýrun á nýju sjöunni stjarnfræðilega stór þegar ég sá hana fyrst, böggar mig ekkert í dag.

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Sat 21. Nov 2009 21:20
by thisman
Æji rosalega ætla þeir að hafa fimmuna dull eitthvað. Afturendinn lítur reyndar smekklega út en mér finnst hann samt voða Audi-legur.

Image

Ég sakna Chris Bangle - no guts no glory!

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Sun 22. Nov 2009 01:30
by Xavant
Hvað er málið með þessi Huge nýru, er enganveginn að fíla þau :?

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Sun 22. Nov 2009 05:34
by Dr. Stock
Nýjar týpur af BMW þurfa tíma til að venjast. Það gildir oft um frábæra hönnun, hún þarf að síga inn. Sá splunkunýjan 750iL í dag Í New York og hann samsvarar sér mjög vel - lika nýrun. Er nokkur slíkur kominn heim annars? Sama held ég gildi um Sexuna og Fimmuna. Mér finnst þær flottar. Raunar alveg snilld. Skil ekki þessa nýrnaveiki í mörgum hér á kraftinum, Ha, ha. :D

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Wed 25. Nov 2009 21:22
by Nökkvi
Athyglisverð umræða um nýrun. Þeir sem þekkja eitthvað til sögu BMW vita að nýrun í gamla daga vor há og mjó, sjá hér:
Image
Þau minnkuðu svo smá saman og í kringum 1990 byrjuðu þau að fletjast út, sennilega fyrst af alvör á E36, sjá hér:
Image
Síðan þá hafa þau alltaf verið að breikka og nú stækka líka. Þetta er bara skemmtileg þróun að fylgjast með. Hugsa að þessi stóru nýru venjist bara vel.

Re: Nýjungar á næstunni frá BMW

PostPosted: Fri 27. Nov 2009 02:27
by Misdo
hvað er í gangi með þessi stóru nýru mikið downstep