bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=39658
Page 1 of 2

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 00:07 ]
Post subject:  S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Rak augun í þetta á Zatzy boardinu, klárlega klikkuðustu project í heimi boardið.
Hérna eru allaveganna dyno gröf frá þessum vélum, búið að taka DBW (drive by wire) í burtu sem og læsa vanosinu.

Powerið finnst mér ekki lélegt, sérstaklega þegar þetta er sett í léttari boddý.


Fjólublá og gula er hjól hestöfl og tog í hjólin á V8
Græna og ljósbláa sýnir V10 vélina

Image

Author:  Alpina [ Mon 07. Sep 2009 00:32 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Ein aðalástæðan fyrir hve E60 M5 er quick græja er 4.10 drifið og 7 gíra kassi,,,

4.10 drif og raunhraði er yfir 200 mílur :thup: .......

Author:  saemi [ Mon 07. Sep 2009 00:47 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Einmitt það sem ég var að pæla, er ekki auðveldast í heimi að taka vanosið út og runna þetta í standalone ef maður fer í swap? Smíða flækjur og maður er samt með í kringum 400 hesta :P

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 09:32 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Alveg bókað að fá 400hö ef þú ert með S62, og alveg bókað að fá 500hö með S85.

Menn hafa alltaf bara verið svo smeykir við nýjar bmw vélar útaf öllu tölvu gizmoinu sem þarf oft að fylgja með.
Enn þegar vanosið er farið sem og dbw þá er lítið annað enn bara venjuleg vél þarna undir :lol:

Author:  fart [ Mon 07. Sep 2009 11:57 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Mér finnst samt rosalega sorglegt að taka vanosið út. Eins og einn harðasti naglinn segir "þeir sem segja að taka vanosið sé málið, segja það bara að því að þeir kunna ekki að prógramera það"

En Gunni segir þetta eiginlega best.. þessar vélar án Vanos eru bara "venjulegar" vélar. Og af hvejru ætti maður þá að vera að standa í þessu. Af hverju ekki bara LSx með öllum þeim möguleikum á hestöflum fyrir lítið sem fylgja þar.

Gunni áttu Gröf af þessum mótorum með Vanos.

Málið er að það er erfitt að fá auka hesta út úr þessum mótorum, þess vegna er dálítð spælandi að henda Togi í ruslið. Það gæti nefnilega verið ódýrt afl þegar upp er staðað.

Edit, þegar maður horfir á þessi gröf þá er eiginlega S62 non Vanos betri en S85 Non vanos, sérstaklega þegar kemur að flækjustigi við kælingu og svo verð.

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 12:23 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Það er nefninlega ekki erfitt að fá hestöfl þegar maður lítur á þetta sem venjulegar vélar.
Og ef maður er ekki bundinn original tölvunni þá verður leikurinn enn auðveldari, þ.e allar normal tjúningar ganga

#1 er t.d original pústgreinarnar á S62. Þær eru þær sömu og á 735i V8.
Segir mér enginn að þarna hefði BMW alveg getað gert stóra hluti, enn peninga teljararnir sáu fyrir því.
Og svo eru menn á M5board að láta röra sig alveg feitast í heimi með flækjum uppá $2500 .,
Er það heilbrigt verð á flækjum? :lol:
Það er ekki meira efni í þeim heldur enn einhverjum USA flækjum sem kosta 10x minna og eru alveg verulega vel hannaðar.

#2. Styttri trumpets á S62 til að auka high end powerið með pulse tuning sem virkar þar.

Ég er ekki að segja neitt slæmt um vanos. Ég er bara að segja að þegar maður er að pæla í notkun á þessum mótorum í
léttari chassis þá verður tapið á vanosi ekki jafn augljóst. Hvað þá ef maður ætlar að fara tjúna vélina svo, fínt að þurfa ekki að fljúga inn sérfræðing eða kaupa standalone uppá mörg hundruð þúsund bara til að nýta vanosið og DBW.

Mitt vandamál með þessar vélar er hvernig er búið að búa að eigendum M5 bíla með öfga verðum á vörum.
t.d $2k fyrir tvö rör í CAI frá Dinan, svoleiðis er bara algjör steypa. Virðist vera að M5 eigendur séu ekki svona grúskarar eins og þeir sem eiga ódýrarri bíla og menn eru að kapitalísa á því með bendover verðum á einu og öllu. Og það mun ekki verða almennilega aðgengileg flóra í þessum mótorum fyrr enn bílarnir verða enn ódýrarri og eigendurin enn fátækari,

Það er einnig ekki hægt að taka Mr.X of alvarlega, það sem er létt fyrir honum er bara ekki létt fyrir neinn annan.
Þegar hann segir að hann geti sett S62 tölvu á tvær M42 vélar , eina framí og eina afturí þá er það ekkert mál
FYRIR HANN. Það er ekkert vandamál að tjúna vanosið ef tölvan sem maður hefur leyfir það. Mér finnst 10% tog tap fyrir neðan 4k ekki mörg hundruð þúsunda virði

Þessar vélar verða alveg kóngarnir í vélarswöppum framtíðarinnar. Þegar þetta fer að detta í verði og menn fara fíflast með þetta í E30/E36 og E46 eins og menn hafa gert með M50/S50/S52 í E30 og E36 þá fara þessar vélar að sýna sitt rétta andlit.

Ég meina þegar M50 kom út ´91 hverjum hefði dottið í hug að í dag væri hægt að kaupa eða setja samann 3.3lítra M20 með pörtum úr nýrri vélum og fá solid 280hö úr M20 með rétta ásnum.

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 12:26 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Gleymdi,
hérna er hægt að skoða original graph fyrir S62 .
Sem og upgrade graf frá RD.

http://www.racingdynamics.com/Localized ... R%20Motors

Author:  saemi [ Mon 07. Sep 2009 12:57 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

fart wrote:
Mér finnst samt rosalega sorglegt að taka vanosið út. Eins og einn harðasti naglinn segir "þeir sem segja að taka vanosið sé málið, segja það bara að því að þeir kunna ekki að prógramera það"

En Gunni segir þetta eiginlega best.. þessar vélar án Vanos eru bara "venjulegar" vélar. Og af hvejru ætti maður þá að vera að standa í þessu. Af hverju ekki bara LSx með öllum þeim möguleikum á hestöflum fyrir lítið sem fylgja þar.



Ég er alveg sammála því. En maður verður líka að taka inn í dæmið flækjustig, kostnað og áreiðanleika (þú þekkir það einna manna best tel ég) þegar maður er að garfa í svona projectum. Ég væri mögulega til í að fórna hestöflum/togi fyrir áreiðanlegri ódýrari vél, ef ég væri að fara að vinna í projecti. Ég er ekki að mæla með að taka vanos-ið úr stock bíl.

Author:  bimmer [ Mon 07. Sep 2009 15:10 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

gstuning wrote:
Og svo eru menn á M5board að láta röra sig alveg feitast í heimi með flækjum uppá $2500 .,
Er það heilbrigt verð á flækjum? :lol:


Dinan flækjurnar kosta $8.000 :wink:

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 15:18 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Ég var að reyna ekki benda á það bull sem Dinan er.
Sá bara glitta fyrir þessum $2.5k verðmiða í einhverjum þráði þarna.

Ég skil bara ekki hvernig menn eru tilbúnir að taka svona verðum þegandi.
Eða eru E39 M5 menn bara ekki svo moddandi vélina að þeir séu að spá í þessum hlutum yfir höfuð?

Author:  bimmer [ Mon 07. Sep 2009 15:28 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

gstuning wrote:
Ég var að reyna ekki benda á það bull sem Dinan er.
Sá bara glitta fyrir þessum $2.5k verðmiða í einhverjum þráði þarna.

Ég skil bara ekki hvernig menn eru tilbúnir að taka svona verðum þegandi.
Eða eru E39 M5 menn bara ekki svo moddandi vélina að þeir séu að spá í þessum hlutum yfir höfuð?


Stór hluti þeirra sem á annað borð höfðu efni á að kaupa þessa bíla nýja finnst
2500 dollarar ekki mikill peningur. Allt önnur fjárráð en E30 crowdið.
Svo hefur þetta eitthvað líka að gera með fjölda seldra eintaka.

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 15:38 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Klárlega.

Enn finnst mönnum ekkert að því að borga 7-10x verð fyrir vörur?

Er einhver e39 M5 eigandinn sem hefur fengið sér sérsmíðaðar flækjur eða eitthvað custom dót?
Er einhver sem hefur komið vélinni í 500hö án þess að fara til einhvers fyrirtækis sem RD, Novak, Hamann, Dinan og svo framvegis?

Author:  bimmer [ Mon 07. Sep 2009 16:12 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

gstuning wrote:
Klárlega.

Enn finnst mönnum ekkert að því að borga 7-10x verð fyrir vörur?


Það hefur enginn framleitt ódýrari flækjur en Supersprint. Ef það væri svona svaka auðvelt
þá væri búið að því. Menn verða að horfa á þetta sem business case. Fjöldi E39 M5 bíla er ekki
svo mikill. Ekki hægt að bera þetta saman við tegundir þar sem eintökin skipta hundruðum þúsunda.
Það er hægt að hnoða saman rörum í flækjur fyrir minni pening. EN..... ekki víst að það sé hægt að
gera sustainable bisness úr því.

gstuning wrote:
Er einhver e39 M5 eigandinn sem hefur fengið sér sérsmíðaðar flækjur eða eitthvað custom dót?


Ekki margir en hér er einn:
http://www.m5board.com/vbulletin/e39-m5 ... -sexy.html

gstuning wrote:
Er einhver sem hefur komið vélinni í 500hö án þess að fara til einhvers fyrirtækis sem RD, Novak, Hamann, Dinan og svo framvegis?


Ekki svo ég muni.

Author:  gstuning [ Mon 07. Sep 2009 17:46 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

auðvelt og auðvelt.

Það þarf bara að hanna flækjur einu sinni, góður vélarsmiður getur komist 99% með hönnun bara á pappír.
Þá er ég ekki að tala um einhverjar kína drasl flækjur eða eitthvað. Heldur eru margar góðar flækjur til í amerískar vélar
fyrir ekki svo mikinn pening.

Og sérsmíðaðar flækjur ekki heldur svo mikið mál, Limmet E30 með V8 er t,d með sérsmíðaðar.

Ég sé auðvitað alveg hvernig markaðurinn virkar, enn mér finnst merkilegt hvað sum fyrirtæki stinga höndunum djúpt ofan í veskið hjá sumum. Ég hef líka séð hver álagning er hjá sumum fyrirtækjum í þessum bransa og það er vel shockerandi.

Author:  bimmer [ Mon 07. Sep 2009 20:32 ]
Post subject:  Re: S62 og S85 þegar þær eru einfaldaðar.

Er ekkert að skána btw:
http://www.turnermotorsport.com/html/de ... _ID=060206

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/