Page 1 of 7

Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 13:25
by Djofullinn
Jæja smá pæling.

Hvaða bimmar á landinu, hvort sem þeir eru í eigu meðlima eða annara, eru þeir áhugaverðustu?
Þá er ég aðallega að spá í frekar rare bílum eða einhverjum mega eintökum.

Þeir sem mér dettur í hug eru:

E34 M5 3.8 hans Arons Friðriks
Silfraði E30 M3 bíllinn
Báðir Alpina B10 BiTurbo bílarnir


Endilega póstið þeim sem ykkur þykir áhugaverðið og afhverju. Ekki væri verra ef að myndir fylgdu 8)

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 13:27
by arnibjorn
E30 M3 Europameister er þokkalega rare :)

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 14:15
by gunnar
E30 Baur gæti talist "rare"

2002 Turbo :mrgreen:

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 14:17
by arnibjorn
gunnar wrote:E30 Baur gæti talist "rare"

2002 Turbo :mrgreen:

Já en ekki áhugaverður samt :D

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 14:41
by Einarsss
Mér finnst BMW prinsinn áhugaverðastur :naughty:

EN ... silfraði E30 M3
Alpina Bi turbo - báðir
OnnO <---áhugaverð modd í þessu tæki og svo lookar hann ekkert illa
BMW 2002 turbo


svona til að nefna nokkra

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 14:47
by birkire
Sexan hans Sæma

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 15:04
by Árni S.
ég væri líka til í að sjá þetta eins og er núna á camaro.is

s.s.Bíll Mánaðarins

það kemur altaf uppá í t.d. bílar meðlima hér að einhver segir "þetta er flottasti e30" á landinu
fer svo í næsta þráð og segir það sama

nema þetta yrði miklu betra en á camaro.is því að hér er mun meira úrval ekki bara camaro,camaro,camaro allan ársins hring

kv. Árni

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 15:28
by JOGA
Mikið af skemmtilegum bílum á skerinu. Þetta er það sem mér datt í hug:

Mega eintök:
E34 M5 hjá Aron Friðrik
E24 Vínrauði
E30 M3 Silfur
E28 Gull hjá SRR (held hann geti orðið það í það minnsta)

Spes/áhugavert:
E39 Onno
E30 S14 jarlarinn
E30 Cabrio S38
E30 Túrbóarnir
E30 335i bílarnir
E36 soon S62 power
E30 RNGTOY
E30 M3 hjá Djöflinum
E36 Alpina Cabrio
E39 Alpina (Ljósblái)

Sjalgæft:
2002 Turbo
E30 M3 Europameister
E34 Alpina Bi-Turbo x2

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 15:32
by arnibjorn
*thisthreadisworthlesswithoutpicsbroskall*

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 15:36
by Steini B
Ekki má gleyma Z3 M Coupe "300"

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 15:59
by Alpina
Tel að guli sé mjög gott eintak,,,,



en allt svona eru undir hverjum og einum komið,,


Fyrir mig persónulega ... þá langar mig akkúrat ekkert í neinn annann BMW ,,,,,,,,,, frekar en þeir tveir sem ég á..

B10 BT var the ultimate goal fyrir 17 árum síðan þeas 1992,,
E30 Cabrio ((325)) var á þessum lista einnig,, en sagan um CABRIO breyttist svo í the ultimate cabrio 8)

Það eru meðlimir hér á spjallinu sem eiga einnig ,, magnaða bíla,, er ekkert að gera þeim minna undir höfuð,, en hverjum þykir sinn fugl fagur :wink: :wink:


menn sem eiga sérstaka bíla ,, að þeirra mati,, þykir vænt um þá..

ps.. eins og ALPINA og CABRIO þá eru þeir báðir algerlega unique ,, enginn eins ,, og þar af leiðandi einu sinnar tegundar í veröldunni (( svo að ég best viti ))

æðisleg tilfinning :loveit: :loveit: :loveit: :loveit: :loveit: :loveit: :loveit: :loveit: :loveit:

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 17:12
by Kristjan
3.8 M5 Aroni Friðriki, þessi bíll er bara svo gjörsamlega flawless eintak af mínum uppáhalds BMW fyrr og síðar
Z3 M Roadster hjá Svezel, ég hef aldrei séð þennan bíl skítugan eða subbulegan. Svo gleymi ég seint þegar Svezel leyfði mér að prófa hann.
ONNO, klikkaðasti BMW á landinu og þótt víðar væri leitað.
Alpina B10 Biturbo Ferrari Gelb... þarf eitthvað að útskýra það?

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 17:26
by Alpina
Kristjan wrote:3.8 M5 Aroni Friðriki, þessi bíll er bara svo gjörsamlega flawless eintak af mínum uppáhalds BMW fyrr og síðar
Z3 M Roadster hjá Svezel, ég hef aldrei séð þennan bíl skítugan eða subbulegan. Svo gleymi ég seint þegar Svezel leyfði mér að prófa hann.
ONNO, klikkaðasti BMW á landinu og þótt víðar væri leitað.
Alpina B10 Biturbo Ferrari Gelb... þarf eitthvað að útskýra það?



Kristján.........

þetta er eldfimur þráður :o

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 18:18
by ValliFudd
E28 M5 sem Sæmi á og ég hef aldrei séð? Bara heyrt sögur af :cry: Það eru ekki margir svoleiðis á landinu :)

Re: Áhugaverðustu bimmar Íslands

PostPosted: Thu 14. May 2009 18:26
by Birgir Sig
afhverju hef ég aldrei séð þennan silfurlitaða e30 m3 :twisted:

á enginn myndir :alien: