bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

430 ps S38B38
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=33512
Page 1 of 1

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 16:14 ]
Post subject:  430 ps S38B38

Þetta er svakalegt.....

Mert hin frægi teppa-tuner


start from beginning

http://www.m5board.com/vbulletin/e34-m5 ... 8-b38.html

Author:  gstuning [ Fri 05. Dec 2008 16:53 ]
Post subject: 

Þýðir ekkert að pæla í flywheel tölunni því að hann festir þá ekki rétt niður til að byrja með,

Cyrus þarna þekki ég persónulega og mældi bílinn minn hjá honum,
Ég hef strappað bíla niður rétt, samkvæmt Dyno Dynamics dealernum í Evrópu sem ég þekki líka persónulega og hjálpað honum að kenna öðrum að strappa niður bíla.

Mert er alltaf að reyna beygjar reglurnar.

Ég hef fylgst með því sem hann hefur verið að mæla og svona eftir að hann datt af internetinu og hann er ekki enn búinn að læra að tjúna, né nota bekkinn sinn almennilega. Enn bekkurinn hans hefur mælt þokkalegar tölur eftir að hann hvarf og fór að gera hlutina betur. Og sum projectin sem hann hefur ætlað að gera eru í stuttu máli fáránleg.

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 17:18 ]
Post subject: 

Já.. allt voða mikið ÖÐRUVÍSI sem hann gerir,, :?

t.d 30% afl-tap ,,,,,,,, það finnst mér hljóma virkilega hæpið :shock: :shock:

Author:  bimmer [ Fri 05. Dec 2008 17:25 ]
Post subject: 

Mert = steypa.

Author:  gstuning [ Fri 05. Dec 2008 17:28 ]
Post subject: 

Dyno Dynamics bekkurinn var þróaður svona.


DD bjó til engine dyno´s fyrst í 70´s til að tjúna V8 sport báta í ástralíu.
Það gékk vel, enn svo vildu menn fara tjúna bílanna sína á bekk til að fá alvöru tölur , þá var tít að menn tjúnuðu með því að fylgjast með litnum á kertum og alskyns galdra vísindi og héldu að þeir væru að gera eitthvað rétt.

Allaveganna þá ákvað DD að það þyrfti að vera hægt að mæla WHP og færa það í HP. Þannig að þeir fóru bara í það að fá stock bíla á bekkinn alveg nýja úr verksmiðjunni, allt frá 1,0civic til 5,7 camaro og hvaðeina.
Og kipptu svo vélunum úr og settu á vélarbekkinn. Þannig með því að ekki giska neitt heldur bara bera samann mælingar yfir endalaust mikið af vélum þá fundu þeir út drivetrain loss fyrir ákveðnar skiptingar og uppsetningar og settu það í bekkina sína, þannig að þegar þeir notuðu sínar aðferðir til að binda bílanna niður þá fást réttar tölur. Of laust og bílinn kemst næstum úr bekknum, of þétt og aflið fer ekki í mæli tromluna heldur líka aftari tromluna sem dregur úr aflinu.

Dynojet og flestir aðrir bekkir gerðu ekki svona, heldur bara ákvarða aflið með einhverjum reikningum sem er geðveikt létt að breyta á bekknum,, t,d mustang dynoar og þar þarf að setja inn þyngdina á bílnum :) hún hefur ekkert með að gera aflið

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 22:39 ]
Post subject: 

Mæli með að menn kíki á m5 borðið ,,, mikill hiti að myndast yfir þessu :lol:

Author:  Aron Fridrik [ Fri 05. Dec 2008 22:53 ]
Post subject: 

er þetta DA motorsports náunginn ?

Author:  Alpina [ Fri 05. Dec 2008 22:54 ]
Post subject: 

Aron Fridrik wrote:
er þetta DA motorsports náunginn ?


BINGO :lol: :o :o :o

Author:  gstuning [ Sat 06. Dec 2008 01:44 ]
Post subject: 

Eftir lestur á innleggum Mert, þá er alveg ljóst að hann er enn að reyna kenna öðrum að nota hlutina,

Þetta er bara týpískt dæmi um einhvern sem á peninga og getur bullað í fólki,
Það sem hann hefur lagt fram í þessum þræði er alrangt og eftir hans eðli að halda að hann hafi rétt fyrir sér,

Alveg eins og þegar hann póstaði ,
Car make 321hp stock, that means it will make 1000hp at 3,11bar boost
Sem þýðir að hann gerði á engann veginn séns fyrir vélina að minnka loft öndun eða auka, heldur bara gamla góða þumalputta reglan
1000hö / 321hö = 3,11sinnum meira, það er 3,11bar boost sem þarf til þess.

Ekkert hefur breyst hjá honum og því ver og miður, ég nefninlega sé spurningarnar sem hann spyr stundum og þær sýna þetta attitude og fávisku í mjög sterku ljósi.

Það er liggur við að maður reporti hann til DD.

Author:  Kristjan [ Sat 06. Dec 2008 02:04 ]
Post subject: 

Do it, það er ekki þeim til góðs að einhver rugludallur útí heimi með of mikla peninga sé að bulla út í loftið hvernig græjurnar séu að virka.

Author:  Alpina [ Sat 06. Dec 2008 07:51 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Eftir lestur á innleggum Mert, þá er alveg ljóst að hann er enn að reyna kenna öðrum að nota hlutina,

Þetta er bara týpískt dæmi um einhvern sem á peninga og getur bullað í fólki,
Það sem hann hefur lagt fram í þessum þræði er alrangt og eftir hans eðli að halda að hann hafi rétt fyrir sér,

Alveg eins og þegar hann póstaði ,
Car make 321hp stock, that means it will make 1000hp at 3,11bar boost
Sem þýðir að hann gerði á engann veginn séns fyrir vélina að minnka loft öndun eða auka, heldur bara gamla góða þumalputta reglan
1000hö / 321hö = 3,11sinnum meira, það er 3,11bar boost sem þarf til þess.

Ekkert hefur breyst hjá honum og því ver og miður, ég nefninlega sé spurningarnar sem hann spyr stundum og þær sýna þetta attitude og fávisku í mjög sterku ljósi.

Það er liggur við að maður reporti hann til DD
.


Haha ,,já spurning


,, það er eitt og annað sem hann hefur eflaust áttað sig á í TT projectinu á S50 sem var ekki ALVEG eins og það átti að vera miðað við planið :roll:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/