bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Frábær fjárfestingarkostur - og sennilega AÐAL draumabíllinn
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=8&t=3002
Page 1 of 1

Author:  bebecar [ Mon 13. Oct 2003 10:37 ]
Post subject:  Frábær fjárfestingarkostur - og sennilega AÐAL draumabíllinn

http://www.mobile.de/SIDX.xhd.i-wAP4V3KPouy8WQ-t-vaNexlCsAsK%F3P%F3R~BmSB10LsearchPublicJ1066043832A1LsearchPublicCCarZ-t-vctpLtt~BmPA1B21B20C167Y-t-vMk_xsO~BSRA6D1100A0A0/cgi-bin/da.pl?bereich=pkw&id=11111111126891272&top=36&

Þetta er bara svo hrikalegt tæki að það er ekki til meiri sleeper en þetta... HVer myndi trúa að 1982 módel af BMW (Alpina reyndar, en BMW í augum flestra) myndi innihalda hvorki meira né minna en 330 hesta!

Image

Author:  Logi [ Mon 13. Oct 2003 10:47 ]
Post subject: 

Þessi er alveg ótrúlega flottur, geðveikur litur! Og ekkert svo rosalega dýr...

Author:  saemi [ Mon 13. Oct 2003 11:45 ]
Post subject: 

Mjjjöög fallegt!

Og já,, það eru ekki margir sem myndu trúa 330 hestum, allavega ef Alpina rendurnar væru ekki á honum !

Og þessi litur fer E12 alveg ferlega vel

Sæmi

Author:  bebecar [ Mon 13. Oct 2003 11:56 ]
Post subject: 

Þessi bíll er gullfallegur... og verðið mjög lágt... ég var að sjá svona bíla síðasta vor á næstum tvöföldu þessu verði, kannski skiptir árstíminn svona miklu.

Og liturinn :clap:

Author:  gstuning [ Mon 13. Oct 2003 11:58 ]
Post subject: 

Ég held að þú ættir að kaupa þennan bíl no matter what þú þyrftir að gera,

Svelta fjölskylduna, selja hundinn, bimmann, öll fötin ykkar, allt verður að fara fyrir þennan bíl, ég sver það kauptu bílinn,

Myndi gera þér gott að vera á svona bíl :)

Author:  bebecar [ Mon 13. Oct 2003 12:01 ]
Post subject: 

ætli það sé ekki auðveldast að selja íbúðina... en ég er ekki viss um að frúin sé sammála....

Author:  gstuning [ Mon 13. Oct 2003 12:05 ]
Post subject: 

You got to do what you got to do,

Núna er akkúrat tíminn að fá svona bíl, þeir eru á leið í stjarnfræðileg verð bráðum og þá er ekki einu sinni nóg að selja íbúðina sína fyrir svona bíl

Author:  bebecar [ Mon 13. Oct 2003 12:10 ]
Post subject: 

Það er reyndar alveg rétt og mjög líklegt að við munum sjá M1 prísa á þessu innan 2-3 ára.

Það voru aðeins framleiddir 60 svona bíla og væntanlega eru einhverjir af þeim heillum horfnir.

Author:  gstuning [ Mon 13. Oct 2003 12:15 ]
Post subject: 

Vélarnar eru samt ekki farnar neitt, sitja í E28 E34 eða E30 bílum, einu og einum E21

Author:  Vargur [ Mon 13. Oct 2003 14:36 ]
Post subject: 

1. Bmw minn var eimitt 520 af þessu sama boddýi, frábær bíll og fallegt boddy, er eitthvað af þessum bílum hér í standi ?

Author:  Giz [ Tue 14. Oct 2003 08:30 ]
Post subject: 

Verð að leggja orð í belg og fagna þessu framtaki bebecars, átti 528, 78 módel með leðri og öllu, þótti rosalega vænt um þann bíl, reyndar það mikið að ég keypti hann aftur um daginn, vélarlausan og var búinn að standa inn í 5 ár, vélarlaus og allslaus.

Væri hinsvegar alveg til í þetta apparat, ásamt 3,0 CSi og M3 E30 væri minn bílskúr fullkominn!

:D

Author:  bebecar [ Tue 14. Oct 2003 08:44 ]
Post subject: 

Þú átt eki mynd af þínum gamla til að skanna og henda inn hér, hann var nefnilega asskoti fallegur sá gamli. Blátt leður og fallega ljósblár... Ég man meira að segja ennþá eftir smellinum í hátölurunum þegar þú flautaðir!

Author:  Giz [ Tue 14. Oct 2003 13:12 ]
Post subject: 

Jú einhversstaðar á ég myndir, skal leita og senda þér við fyrsta tækifæri ef finnst.

Giz

Author:  saemi [ Tue 14. Oct 2003 13:14 ]
Post subject: 

Ég á framspoiler á bílinn fyrir þig, nokkuð smekklegur, schnitzer að mig minnir :wink:

Þetta passar ekki á milli E12 og E28

Sæmi

Author:  GK [ Tue 14. Oct 2003 16:38 ]
Post subject: 

Þessi er alveg hreint Magnaður vá hvað hann er flottur :D

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/