Page 1 of 2

Svartur E23 745 hér á landi

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 16:41
by Knud
Kannast einhver hérna við að hafa heyrt um svartan E23 745. Frændi minn fór og skoðaði þennan bíl fyrir nokkrum árum, hann var víst einhversstaðar í hafnarfirði, leit víst alveg þokkalega út. En hann mundi ekki alveg hvar hann hefði skoðað hann

Það eru allavega tveir sem ég veit um, bíllinn sem ég á, RP-281
svo blái bíllinn sem sæmi á

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 16:49
by Stebbtronic
Er blái hans sæma kominn heim, var hann ekki með hann úti?
Ég á allavega allt sem þarf til að gera þinn turbó aftur \:D/

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 17:00
by Knud
Hann var allavega hérna heima þegar ég skoðaði hann um daginn, sendi pm varðandi turbo dótið 8)

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 17:12
by Stebbtronic
Já ok vissi ekki að hann væri kominn með hann heim :oops:

En dótið sem ég á er samt af m102, held að það gæti vel gengið á m30b34 með smávægilegum breytingum.

Svo var það nú einn skólabróðir okkar(Gísli) sem að seldi Sæma hvíta 745i bílinn á sínum tíma.

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 17:23
by saemi
Það hefur aldrei verið hér á landi svartur 745i svo að ég viti.

Einu 745i hér eru minn blái og svo brúni þinn. Svo fóru í pressuna hvíti og blái með gömlu vélinni.

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 17:31
by Knud
Jæja ég var að hringja í frænda og hann reyndar mundi þetta ekki alveg, en þetta var allt að koma, hann fór og skoðaði þennan bíl kringum 2000 og hann stóð við eða í einhverjum dúfnakofa við golfvöllinn í hafnarfirði. Það var víst nýupptekinn skiptingin og bíllinn var búinn að fá einhverja aðhlynningu. Hann var nánast búinn að kaupa hann en svo klikkaði eitthvað. Þetta eru allavega upplýsingarnar sem ég fékk

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 18:30
by saemi
Góð saga!

Ég hef aldrei heyrt um þetta. Væri gaman að fá botn í þetta :)

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 18:32
by arnibjorn
Getur verið að það hafi verið 735?

Ég sá allavega virkilega smekklegan E23 735i um daginn! 8)

Danni djöfull kannast eitthvað við strákinn sem á hann... sem er málari btw og er bíllinn nýmálaður.

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 18:38
by Knud
arnibjorn wrote:Getur verið að það hafi verið 735?

Ég sá allavega virkilega smekklegan E23 735i um daginn! 8)

Danni djöfull kannast eitthvað við strákinn sem á hann... sem er málari btw og er bíllinn nýmálaður.


Þeir feðgar sem fóru að skoða hann voru harðir á því að hann væri turbo

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 20:08
by Alpina
SCHWARZ----------- E23 745 :-s :-k :^o :^o

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 21:22
by Svezel
hef séð svartan e23 (sem ég hélt að væri 735) nokkrum sinnum fyrir utan Skýrr, virkilega snyrtilegur bíll.

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 22:01
by srr
Ég sá einn hvítan E23 fyrir ca mánuði síðan keyrandi niður elliðárbrúnna.
G-1833, skráður sem 728, innfluttur nýr 1982.
Sami eigandi frá 1982-2002.
Núverandi eigandi skráður í Hæðarbyggð, Garðabæ.
Hann leit MINT út.

Ellefu síðustu skoðanir hafa verið án athugasemda, ekinn um 2-8.000 km á ári :wink:

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 22:20
by gunnar
srr wrote:Ég sá einn hvítan E23 fyrir ca mánuði síðan keyrandi niður elliðárbrúnna.
G-1833, skráður sem 728, innfluttur nýr 1982.
Sami eigandi frá 1982-2002.
Núverandi eigandi skráður í Hæðarbyggð, Garðabæ.
Hann leit MINT út.

Ellefu síðustu skoðanir hafa verið án athugasemda, ekinn um 2-8.000 km á ári :wink:


Maðurinn sem á þennan bíl á hús einmitt við hliðina á mér (lögheimilinu) í Garðabæ , ég er aðeins búinn að skoða þennan bíl og hann lítur vægast sagt vel út. Alltaf geymdur inni og kallinn er með ansi góða bíladellu. Hann á 1950~ módelið af Willys og aðra fleiri gamla jálka.

PostPosted: Tue 04. Dec 2007 23:05
by Alpina
Svezel wrote:hef séð svartan e23 (sem ég hélt að væri 735) nokkrum sinnum fyrir utan Skýrr, virkilega snyrtilegur bíll.


manstu nr. á þeim bíl

PostPosted: Thu 06. Dec 2007 01:47
by Spiderman
srr wrote:Ég sá einn hvítan E23 fyrir ca mánuði síðan keyrandi niður elliðárbrúnna.
G-1833, skráður sem 728, innfluttur nýr 1982.
Sami eigandi frá 1982-2002.
Núverandi eigandi skráður í Hæðarbyggð, Garðabæ.
Hann leit MINT út.

Ellefu síðustu skoðanir hafa verið án athugasemda, ekinn um 2-8.000 km á ári :wink:


Fósturpabbi félaga míns á þennan bíl, þessi bíll er búinn að vera í eigu sömu fjölskyldu síðan 1982. Þessi bíll er bara einn af ca. 15 mint cond. fornbílum sem eigandinn og bróðir hans eiga.