Page 1 of 1

850i´92

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 09:37
by jens
Vitið þið eitthvað um þennan bláa 850i ´92 sem er á sölu núna, allar upplýsingar vel þegnar bæði góðar og slæmar.

http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=CAR&BILASALA=29&BILAR_ID=105913&FRAMLEIDANDI=BMW&GERD=850I&ARGERD_FRA=1991&ARGERD_TIL=1993&VERD_FRA=690&VERD_TIL=1290&EXCLUDE_BILAR_ID=105913

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 09:51
by elli
Er þetta ekki USA bíll?
mig mynnir að það séu lítil númer (USA númer) á honum. Leiðréttið mig ef rangt reynist.
Annars er þetta ágætis verð.

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 10:54
by valdiþ
Ég prófaði þennan bíl með félaga mínum fyrir ca mánuði síðan.

Hafði greinilega staðið aðeins því að við þurftum að byrja á að setja rafmagn á hann.

Að utan lítur hann ágætlega út , sá ekkert ryð en rétt leit yfir bílinn bara.
Það er pottþétt búið að sprauta bílinn nýlega.

Að innan er önnur saga. Í einu orði sagt hrikalegt.
Ef ég mundi kaupa þennan bíl þá væri það fyrsta sem ég mundi gera að hreinsa allt innan úr bílnum og skipta um.
Ég get eiginlega ekki sagt neitt gott um innréttinguna, hún var frekar sjúskuð, tikkaði í stýrinu þegar var beygt, hurðarspjöld laus, klæðning rifina osvfrv.

Það var líka hellingur af viðvörunarljósum í mælaborðinu, spáði ekki mikið í hvað það var.

Þetta er mín reynsla af skoðun á bílnum, var frekar stutt og yfirborðskennt þar sem það varð algert turn-off þegar maður settist inn í bílinn.

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 11:24
by Benzari
Ef um alvarlegar pælingar er að ræða er sniðugt að spjalla við "Dr.E31".

V12 er bara $$$$$$$$$$$$$$$$ og :hmm: og meira ](*,)

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 12:06
by elli
valdiþ wrote:Ég prófaði þennan bíl með félaga mínum fyrir ca mánuði síðan.

Hafði greinilega staðið aðeins því að við þurftum að byrja á að setja rafmagn á hann.

Að utan lítur hann ágætlega út , sá ekkert ryð en rétt leit yfir bílinn bara.
Það er pottþétt búið að sprauta bílinn nýlega.

Að innan er önnur saga. Í einu orði sagt hrikalegt.
Ef ég mundi kaupa þennan bíl þá væri það fyrsta sem ég mundi gera að hreinsa allt innan úr bílnum og skipta um.
Ég get eiginlega ekki sagt neitt gott um innréttinguna, hún var frekar sjúskuð, tikkaði í stýrinu þegar var beygt, hurðarspjöld laus, klæðning rifina osvfrv.

Það var líka hellingur af viðvörunarljósum í mælaborðinu, spáði ekki mikið í hvað það var.

Þetta er mín reynsla af skoðun á bílnum, var frekar stutt og yfirborðskennt þar sem það varð algert turn-off þegar maður settist inn í bílinn.

Hljómar frekar illa :?

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 18:31
by Turbo-
sá hann stopp úti í kannti fyrir framan steypustöðinua áðan

PostPosted: Fri 19. Oct 2007 21:07
by elli
Turbo- wrote:sá hann stopp úti í kannti fyrir framan steypustöðinua áðan

Jæks :roll: