Page 1 of 1
E60 testdrive

Posted:
Tue 26. Aug 2003 22:53
by Alpina
Keyrði E60 BMW 530 i dag........
Stórfínn bíll og er munurinn á góðum E39 og E60 sáralítill ef einhver!!!!
((kannski erfitt að bæta það sem frábært er))
Aflið er gott..... skiptingin frábær!!!! Rafmagnsgizmo???????????
Sv.H

Posted:
Wed 27. Aug 2003 00:42
by Gunni
þetta er snilldar bíll og það er alveg frábært að keyra hann. Einn besti bíll sem ég hef keyrt allavega. Fannst þér ekki gaman að beygja vel á smá hraða ??


Posted:
Wed 27. Aug 2003 09:18
by Kull
Ég á tíma næsta mánudag, verður gaman að prófa. Annars hef ég séð bílinn á ferðinni nokkrum sinnum undanfarna daga, sá meira segja Gunna vera að prófa, og bíllinn tekur sig vel út á götunni.

Posted:
Wed 27. Aug 2003 19:03
by Alpina
Ég prófaði ekki DYNAMIC-DRIVE en er boðinn í sérstakann
Dynamic-drive tíma á næstunni
Sv.H

Posted:
Wed 27. Aug 2003 20:05
by Bjarkih
Nú verð ég víst að opinbera fáfræði mína, en hvað er Dynamic-drive??


Posted:
Thu 28. Aug 2003 08:42
by bebecar
Dynamic Driver er nýjung og mjög sniðug sem slík - virkar þannig að stýrið þarf mismarga snúninga borð í borð, t.d er mjög auðvelt að snúa því og þarf færri snúninga í þröngu stæði á lítilli ferð, en á mikill ferð er það stífara og nákvæmara og þörf á fleiri snúningum.

Posted:
Thu 28. Aug 2003 17:53
by Mal3
bebecar wrote:Dynamic Driver er nýjung og mjög sniðug sem slík - virkar þannig að stýrið þarf mismarga snúninga borð í borð, t.d er mjög auðvelt að snúa því og þarf færri snúninga í þröngu stæði á lítilli ferð, en á mikill ferð er það stífara og nákvæmara og þörf á fleiri snúningum.
Er Dynamic Drive ekki stillanlegur jafnvægisstangirnar en það sem þú talar um Active Steering eða Active Drive?

Posted:
Thu 28. Aug 2003 17:57
by arnib
Mal3 wrote:Er Dynamic Drive ekki stillanlegur jafnvægisstangirnar en það sem þú talar um Active Steering eða Active Drive?
Held að þetta sé hárrétt hjá þér,
amk held ég að mismunandi snúningar á stýrinu séu
Active Steering, og mér skilst (því miður) að enginn af E60 bílunum hérna sé með því..
:/

Posted:
Thu 28. Aug 2003 18:01
by Gunni
það er rétt. en þetta dynamic drive er alveg magnað, virkar mjög skemmtilega.

Posted:
Thu 28. Aug 2003 18:12
by Mal3
arnib wrote:Mal3 wrote:Er Dynamic Drive ekki stillanlegur jafnvægisstangirnar en það sem þú talar um Active Steering eða Active Drive?
Held að þetta sé hárrétt hjá þér,
amk held ég að mismunandi snúningar á stýrinu séu
Active Steering, og mér skilst (því miður) að enginn af E60 bílunum hérna sé með því..
:/
Merkilegt. Ég man þegar ég las Tech Report um þennan búnað í Evo og fannst þetta einhver sniðugasta tækninýjung sem ég hafði heyrt um í bílum lengi. Alger snilld að láta sér detta svona í hug.
Hin snilldarhugmyndin er auðvitað camless engine sem Lotus mun væntanlega setja á markað eftir kannski 5 ár eða svo ásamt öðrum aðila. Ég er bara skíthræddur að þessi hinn aðili sé GM...

Posted:
Thu 28. Aug 2003 18:57
by bebecar
Æ jú - ég ruglaðist eitthvað í þessu.