Page 1 of 1

..Blæja 4 sale..

PostPosted: Tue 11. Jul 2006 22:37
by ///Matti
Langaði bara að benda á þennan :wink: Kona sem bjó víst í USA og tók hann með sér á klakann.Skoðaði hann aðeins í dag og hann lúkkar bara nokkuð vel (fyrir utan ssk) 8) Líka keyrður lítið..

Reyndar finnst mér þetta verð soldið í hærri kantinum :?

http://www.bilasolur.is/Car.asp?SHOW=CA ... W&GERD=325 I

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 00:00
by D@BBI
Svakalegt verð er á þessum, en fallegur bíll og lítið ekinn

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 00:34
by MRA530d
Ég sá hann á sölunni. Fannst verðið fullhátt, en er það ekki vaninn með blæjubílana? Myndi ástandsskoða til að reyna að réttlæta verðið. Kannski er þetta gullmoli í dulargervi? :lol:

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 04:46
by Danni
Er þetta kanabíll þá? SS. með tígul í númeraplötunni þar sem IS merkið er á nýjustu plötunum? Því þá er þetta örugglega verð eftir að það er búið að borga skatt og toll af bílnum, eða það sem þarf að borga til að skrá hann á Íslensk númer.

Það er allavega helling af bílum til sölu uppá velli á skít og kanil núna þar sem kaninn er að fara, en það sem skemmir söluna fyrir þeim eru þessi gjöld sem þarf að borga því þau eru svo gríðarlega há!

PostPosted: Wed 12. Jul 2006 08:46
by elli
Skoðaði hann um daginn, tók fyrst eftir verðmiðanum og varð óglatt, sá síðan að þetta var US bíll og labbaði þá út. En hann leit rosa vel út. Hafði bara ekki áhuga á US bílum á þessu verði.

PostPosted: Sat 15. Jul 2006 14:01
by Eggert
Var ekki 325i blæja til sölu í fréttablaðinu um daginn á 700k?

Þetta verð er bara rugl.

PostPosted: Sat 15. Jul 2006 14:51
by IvanAnders
sama ásetta verð og á M3 blæjunni sem að ///Matti átti :roll: