Page 1 of 1

Gamlar konur og BMW-ar!

PostPosted: Fri 02. May 2003 22:52
by Haffi
Var ekki með myndarvél en ég og Gunni sáum rúmlega 70 kellingu á E30 BMW 325IX uppí B&L og sá var nú suddalega flottur....

Ætli hún hafi eitthvað verið að þrykkja honum?
Hún var varla fær um að ganga....
Veit ekki afhverju mér finnst að gamlar konur eiga að vera á Nissan Micru ! :(

PostPosted: Fri 02. May 2003 23:28
by Heizzi
Já kæmi mér ekki á óvart að hún væri svolítið að flengja hann :)
Ég var að skutla ömmu gömlu um daginn, hún er orðin áttræð. Hún spyr mig hvort þetta sé ekki örugglega beinskipt, ég játa því og þá segist hún nú alltaf hafa verið hrifnari af því, segir að þá viti maður sko nákvæmlega hvar maður hefur bílinn :wink:
Ánægður að heyra þetta þetta hjá áttræðri konu... :D

PostPosted: Fri 02. May 2003 23:50
by Haffi
hehe, lánaðu ömmu þinni bílinn þinn og gáðu hvort hún komi ekki heim til þín að skila honum í bullandi slædi !! :)

Re: Gamlar konur og BMW-ar!

PostPosted: Sat 03. May 2003 15:01
by Gunni
Haffi wrote:Var ekki með myndarvél en ég og Gunni sáum rúmlega 70 kellingu á E30 BMW 325IX uppí B&L og sá var nú suddalega flottur....

Ætli hún hafi eitthvað verið að þrykkja honum?
Hún var varla fær um að ganga....
Veit ekki afhverju mér finnst að gamlar konur eiga að vera á Nissan Micru ! :(


já þetta var massa fyndið. Þessi bíll var líka geðveikt vel farinn. hann leit út eins og nýr !

PostPosted: Sat 03. May 2003 15:06
by oskard
hvernig var hann á litinn og var hann touring eða ? :)

PostPosted: Sat 03. May 2003 16:25
by Haffi
svartur .... var hann ekki 4 dyra?

PostPosted: Sun 04. May 2003 15:19
by Gunni
nei 2ja dyra

PostPosted: Sun 04. May 2003 15:52
by hlynurst
Haffi wrote:svartur .... var hann ekki 4 dyra?


Þú verið að horfa á kerlinguna ekki bílinn... :?

PostPosted: Sun 04. May 2003 16:08
by oskard
hahahahahaha :lol: :lol: :lol: :lol: 8)

PostPosted: Sun 04. May 2003 17:16
by Gunni
HEHEHEHE, hún var nú full gömul fyrir það held ég :lol:

PostPosted: Sun 04. May 2003 17:48
by Alpina
Eigandinn af þessum bíl er (var) Bára bleika/hjá Báru alias
Bára Sigurjónsdóttir og númerið er BS-666
((((((((((((og er ekki einkanúmer))))))))))))))))

bílinn er hún búinn að eiga frá upphafi!!!!!!!!!!!

Sv.H

PostPosted: Sun 04. May 2003 18:51
by saemi
Það er alltaf gaman þegar fólk er búið að eiga bíla svona lengi, eitthvað svo sætt við það :P

P.S. þetta með bullandi slædið var nokkuð skondið, ásamt flengingunni...

Sæmi

PostPosted: Sun 04. May 2003 19:14
by O.Johnson
Snildar bílnúmmer :D Var konan kanski með hala og horn. :lol: :lol: :lol:

PostPosted: Sun 04. May 2003 19:32
by Halli
þetta er bíll í hafnafirði og stendur á honum 325ix og er 4 dyra hann stendur alltaf hjá Firðinum

PostPosted: Sun 04. May 2003 19:35
by benzboy
Þetta er rétti andinn, maður er aldrei of gamall til að eiga almennilegan bíl :o