Við skulum bara renna vísindalega í þetta.
þetta er klárlega USA bíll, sést á númeraplöturömmunum og Orange ljósunum að framan.
Samt er seljandinn:
Phillip Thomson
D-80797 München
Tel.: +49 - (0)893 / 0773764
"Mail me for more details and photos" er síðan dead giveaway, fyrir utan verðið að sjálfsögðu og svo 360 hestana.
Ef þetta væri þjóðverji eins og númerið gefur til kynna þá væri þetta fyrsti þjóðverjinn sem vill að þú hafir samband í gegnum Email
Svona virkar þetta scam:
1. Myndin er örugglega stolin frá einhverju
www.ebay.com auctioni eða af autotrader.
2. Sett er inn auglýsing á fáránlega lágu verði og svo gefið upp símanúmer sem virkar ekki. Þá ferðu að hafa samband í gegnum email og veist þ.a.l. ekkert hvaðan í heiminum það email er að koma.
3. Þú spyrð af hverju er hann svona ódýr og þá færðu svar er er einhvernvegin svona "ég er fluttur frá usa/europe og þarf að losa bílinn", "ég þarf að koma honum undan", "ég er að skilja" eða einhverja aðra fáránlega "Nígeríuskýringu"
4. Til þess að fá bílinn þá þarftu að greiða "staðfestingargjald" sem er eitthvað voða lítið.. t.d. €2000. Þá ertu búinn að tryggja þér bílinn. Þú vírar peningana og sérð þá aldrei aftur.
Anyway.... fáránlega ódýrir bílar eru bara fáránlega ódýrt scam. Leið til þess að fá menn sem halda að þeir geti gert einhverja Uber díla til þess að tapa 2000kalli.
Allavega, just for the hell of it.. Hringdu í númerið, ég lofa því að það er ekki til, eða það svarar einhver sem kannast ekkert við þetta.