Jú það má víst ekki gleyma þeim; E9 csi, Batmobile og 2002 Turbo, en mér finnst M1 klárlega með því merkilegra sem komið hefur frá þessum verksmiðjum, þó svo hann hafi ekki verið í algeru samræmi við það sem áður hafi verið gert. Við lestur á BMW greinum þá tek ég oft eftir því að vitnað sé í M1.
En það er kannski bara vitleysa að vera að hefja þetta svona upp til skyjana þar sem þeir framleiddu ekki nema rúmlega 450 stk. af þessu.
Mér finnst M1 líklega svona merkilegur þar sem ég fékk model af svona bíl í afmælisgjöf þegar ég var pjakkur, þá vissi ég alveg hvað BMW var og var með flestar tegundir á hreinu en þetta helvíti hafði ég aldrei séð og skildi ekkert í hvað var en hann hafði "nýru"

og það stóð á honum BMW, það var ekki fyrr en mögrum árum seinna að ég rakst á þessar gærjur.