urban wrote:
En hérna finnst fólki akstur í kringum 300 þús km virkilega vera mikill akstur á bílum sem að upprunalega eru dýrir og oftar en ekki lúxusbílar ?
ég veit um helling af toyotum, nissan, mmc og álíka "verkamannabílum" sem að eru að komast í ca 300 þús
ég hefði haldið að það teldist ekki mikill akstur á þýskum eðalbíl
ég skil hvað þú átt við, en þetta er nú bara þannig að þegar flestir þessir eldri lúxusbílar voru smíðaðir þá voru bílar almennt ekkert að endast neitt svakalega mikið. og síðan ef við lítum á þetta á annan hátt þá eru þessir lúxusbílar svo sannarlega vel smíðaðir en í staðinn kemur að það er alveg óhemja af drasli til þess að bila, í þessum yaris dósum og öðru sem þið segið að endist og endist þá er ástæðan einmitt sú að það er bara lítið sem ekkert til að bila. þannig ef "venjulegu" viðhaldi er sinnt þá endist þetta að eilífu, en að geta notað 20+ára þýskan lúxusbíl ekinn 300+þúsund og alveg tööluvert flóknari en margir nýjir bílar í dag það finnst mér til fyrirmyndar.
