Á bílnum eru ekki þessi afturljós,ekki þessir speglar.ekki þessi framstuðari, og þar að auki skipti ég um bæði frambrettin og húddið.
Ég keypti M stuðara frá Þýskalandi og er hann á honum í dag.
Hægra frambrettið var óorginal djönk sem passaði ekki á bílinn og var búið að stilla það af með slatta af skinnum til að láta það passa.
Bíllinn er farinn að láta á sjá og þarf ég að almála hann þegar að ég kemst í það.
Felgurnar eru orðnar frekar sjúskaðar og þær þarfnast uppgerðar.
Þessa felgur fara bílnum ágætlega þótt einhverjum þykir þær ljótar þá hef ég bara ekki efni á því að fylgja einhverri felgutísku í hvert skipti sem einhver er að tjá sig um útlit þeirra.
Felgur sem mér langar í kosta um hálfa millu en ég bara tek ekki sénsinn þær gætu þótt ljótar.
Ég fæ annað slagið símtöl varðandi þennan og e21 sem ég á þar sem menn eru að athuga með það hvort mögulegt sé að fá þá keypta.
En ég ætla að eiga þá báða þar sem þetta eru safngripir.
Þessi bíll er alltaf geymdur inni á veturnar en ég varð að taka hann í notkun fyrr en venjulega þetta árið af því að vélin gafst upp í 4Runnernum mínum.