Atriðin sem sett var útá í ástandskoðuninni voru.
Aðalljósker vinstra. Brunablettur í plastinu.
Lakk rispað eða skemmt. Grjótbarinn og rispa á frambretti
Beyglur á yfirbyggingu. Man eftir einni undir hliðarspeigli vinstramegin
Ryð framst á Húddi.
Felgur rispaðar. yfirborðsrispur og varla neitt til að setja út á á 9 ára bíl á íslenskum vegum.
Það var giskað á 274.000 krónur í viðgerð
Plús 75 þúsund í "hljóð frá mótor" sem var reyndar aldrei hægt að útskýra neitt meira fyrir mér en það og man ég ekki eftir þessum hljóðum. Ég tengdi það allavega fyrst því að skipt var um vatnsdæluhús og það sem tengist viftuspaðanum. Kanski eitthvað að rekast utaní þar??
Þeir áætla svo söluverðmætin 1.600.000kr
Svo voru þeir alltaf að væla yfir smuri, reyndi að útskýra fyrir þeim check control, það var ekki hægt

En þetta gefur mönnum allavega hugmynd um bílinn og verðmætin.
Og svo langar mig að bæta við að í gegnum þennann prósess er ég búinn að sjá að svona stofnun eins og Avant eru frekar miklir drullusokkar, þeir reyna allt og búast við að menn brosi og borgi,
Ég stóð/stend uppi í hárinu á þeim og það er líka það eina sem hægt er að gera, það breytti allavega loka uppgjörinu um nokkur hundruð þúsund.