bimmer wrote:
Hvað með bensíneyðslu á E60 M5 vs. E39 M5?
Margir sem súpa hveljur yfir E60 M5 eyðslunni og svo er maður
farinn að heyra af mönnum sem eru að gefast upp á E92 M3 af sömu
ástæðu.
Ef ég man rétt þá var E39M5 minn með 20L/100 í mínum regular rúnti í og úr vinnu (sem var gjarnan dálítið spirited

)... E60M5 var með 27 hjá mér, en 23 hjá konunni.
E39M5 getur krúsað á 130 á c.a. 12L/100 myndi ég áætla, en E60M5 fer ekki niður fyrir 15L/100, það tókst mér allavega ekki.
Hljómar ekki eins og svaka munur, en þetta tekur samt í. Ég vann 4km frá heimili mínu, en tók gjarnan lengri leiðina heim, þurfti að fylla bílinn vikulega. Hreint út sagt ÓTRÚLEGT hvað hann drakk þegar hann var í stuði.
Reyndar hef ég aldrei skilið það að menn pirri sig á toginu í S85 vs S62. S85 togar meira, að vísu á 1000rpm hærri snúningi, en til hvers að keyra bílinn niður í svo lágan snúning. Vinslusvið S85 er bara annað, frá 2500rpm til 8500rpm á meðan maður keyrði S62 frá 1500rpm í 7000rpm. Um leið og maður fattar virkilega hvert vinnslusvið S85 er og fer að nota gírana í stíl verður æðislegt að keyra bílinn, líka í rólegum akstri.
Ég veit ekki alveg hver munurinn er á því af hverju S65/85 eyða svona mikið meira en S62, en mig grunar að það stafi af því að þetta eru meira tjúnaðar vélar (S65 skilar fleiri hestum úr færri cc's en S62) en við hærri snúning og er snúningsglaðari (töluvert). Ætli það séu ekki líka dálítið case-ið, menn eru að keyra þessa bíla við fleiri rpm's.