Bjarkih wrote:
Kristjan wrote:
Giz wrote:
Já, hann er í Gautaborg, eða rétt utan við Gautaborg öllu heldur og heldur þar til í þessri líka fínu hlöðu og étur gras.
Vex gras inn í hlöðunni? Við bændur köllum það venjulega hey...... nema þú berir slæjuna í greyið.

Ég hef ekki séð hey inn í einni einustu hlöðu hér í Svíþjóð, og ekki mikið af rúlluböggum heldur. Held að búpeningurinn fái að mestu kornmeti sem fóður. Þetta er hinsvegar fyrirtaks aðferð til að láta bíl ryðga, mikill raki sem stígur upp úr jörðinni o.þ.h plús náttúrulega mikill loftraki.
Rétt er það, ég biðst forláts á augljósri fáfræði minni á búskap en allt er hey í harðindum nema hey babbalúlla sís mæ beibí.
Hinsvegar er bíllinn ásamt mörgum öðrum bílum, fínni og ófínni í "hlöðu" þannig að ekki er raka eða annað að óttast þar sem um sérútbúinn geymslugaur er að ræða. Takk fyrir gott boð varðandi Svíþjóð, læt vita þegar nær dregur hvað verður.
Ef eitthvað er óvinur þessarra bíla þá er það ryð, þannig að ég held að líftíma í rakri hlöðu yrði ekki mikill!!
G