Sammála... mér finnst hann mjög vel heppnaður. Settist inn í einn í München um daginn og kom á óvart hvað hann virtist rúmgóður, a.m.k. fyrir fullorðna. Sá bíll var dökkblár 325i, með ljósbrúnni leðurinnréttingu og Alpina felgum

.Það eina sem ég hefði gert öðruvísi eru afturljósin... en ég fæ víst seint vinnu í hönnunardeildinni þarna.
(En talandi um framsvip þá sá ég hér um daginn tvær BMW sjöur hlið við hlið - E65 og svo nýja faceliftið. Persónulega finnst mér gamla bara miklu flottari þó ég hafi ekki þolað hana fyrst. Faceliftið er einhvern veginn búið að skemma þetta brútal lúkk sem mér finnst núna orðið flott)