Page 1 of 2

Kraftaukning í 523i

PostPosted: Thu 03. Feb 2005 22:35
by Hjalli_Te
Góðan daginn,

getur einhver frætt mig um KN kraftsíur (s.s. loftsíur til að auka kraft) Hve mikil áhrif þær hafa og hvort eitthvað mæli gegn þeim?

Einnig væri gaman að vita hvort menn hafi einhverja reynslu af "Superchips" sem sagðar eru auka afl 2,5 lítra véla um ca. 15 hestöfl. Hefur einhver reynslu af þessu? Plúsar og mínusar.

Bkv,
H

PostPosted: Thu 03. Feb 2005 23:49
by Lindemann
K&N síur og þessháttar síur auka ekki kraftinn að neinu ráði, sjaldnast sem finnst munur... en þær koma samt hagstæðar út þar sem það má þrífa þær.
held þær eigi líka að þola betur raka heldur en venjulegar pappasíur

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 06:23
by Einsii
Ég heyrði samt að þesar olíu plastsíur væru stundum að sleppa olíuni inn með loftinu þegar þær blotnuðu og það er víst ekki gott

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 17:42
by Hjalli_Te
OK, en vitið þið eitthvað um þessa tölvukubba? Hafa þeir gefið góða raun eða ekki?

Kv,
H

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 20:35
by Tommi Camaro
Einsii wrote:Ég heyrði samt að þesar olíu plastsíur væru stundum að sleppa olíuni inn með loftinu þegar þær blotnuðu og það er víst ekki gott

hvers vegna er það ekki gott , :roll:

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 20:37
by Tommi Camaro
ég setti kubb í bílinn minn og það er einabreyttinginn sem var gerð á honum, hann bæti sig svakalega sýndi það alveg í 0-100 og 1/4 mílu og bensín eyðslu

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 20:56
by Jss
Hjalli_Te wrote:OK, en vitið þið eitthvað um þessa tölvukubba? Hafa þeir gefið góða raun eða ekki?

Kv,
H


Það er búið að setja Superchip í minn og það þrælvirkar. :D Mældi hann að vísu ekki fyrir og eftir en finn skemmtilegan mun.

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 21:39
by Jökull
Ættlaði einmitt að fara að benda á þig Jóhann :wink:

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 22:06
by XenzeR
Er eikkvað vit í því að setja Superchip í bmw 318 - e36 ?? og hvað kostar svoleiðis.

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 22:15
by Jss
Getið séð ummæli nokkurra meðlima um bílinn hérna:

Ummæli á bílar meðlima

Ættuð að geta séð verð og annað á:

http://www.superchips.is

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 22:17
by Jökull
XenzeR wrote:Er eikkvað vit í því að setja Superchip í bmw 318 - e36 ?? og hvað kostar svoleiðis.


Ætli þú fáir ekki um 10-15 hö og um 15-20nm. Veit ekki hvað það kostar en það borgar sig held ég ekki :)

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 22:22
by bjahja
Jökull wrote:
XenzeR wrote:Er eikkvað vit í því að setja Superchip í bmw 318 - e36 ?? og hvað kostar svoleiðis.


Ætli þú fáir ekki um 10-15 hö og um 15-20nm. Veit ekki hvað það kostar en það borgar sig held ég ekki :)

Ég held að það séu 10 hestöfl top........

PostPosted: Fri 04. Feb 2005 22:24
by Jökull

PostPosted: Mon 07. Feb 2005 12:47
by Hjalli_Te
Eru virkilega ekki fleiri sem geta tjáð sig um þessa tölvukubba? :?

Nú eru þeir til þess gerðir að fikta í kveikjutíma og bensínblöndu ofl. Getur þetta ekki hreinlega orðið til að rústa vélunum fyrr en ella??? Engar hryllingssögur af þessu dóti? Er mjög spenntur að gera þetta en jafnframt hræddur við að breyta því sem gott er.

Nú efast ég ekki um að þessi þristur hjá þér Jóhann virki fínt, en hefur t.d. eldsneytiseyðslan stóraukist? Og hvað veistu með slit og áreiðanleika á vélinni??

Gaman væri að fá fleiri skoðanir á þessu...

bkv,
H

PostPosted: Mon 07. Feb 2005 21:48
by Jss
Hjalli_Te wrote:Eru virkilega ekki fleiri sem geta tjáð sig um þessa tölvukubba? :?

Nú eru þeir til þess gerðir að fikta í kveikjutíma og bensínblöndu ofl. Getur þetta ekki hreinlega orðið til að rústa vélunum fyrr en ella??? Engar hryllingssögur af þessu dóti? Er mjög spenntur að gera þetta en jafnframt hræddur við að breyta því sem gott er.

Nú efast ég ekki um að þessi þristur hjá þér Jóhann virki fínt, en hefur t.d. eldsneytiseyðslan stóraukist? Og hvað veistu með slit og áreiðanleika á vélinni??

Gaman væri að fá fleiri skoðanir á þessu...

bkv,
H


Eldsneytiseyðsla er óbreytt, hefur lækkað ef eitthvað er. Slit og áreiðanleiki er ekki eitthvað sem ég hef áhyggjur af með svona, þannig séð, lítilli breytingu.