Page 1 of 1
Felguþrif... messy shit

Posted:
Tue 23. Nov 2004 11:21
by Kristjan
Ég tók felgurnar undan að aftan áðan til að láta umfelga þær og við mér blasti ófögur sjón. Felgurnar eru svona líka drulluógeðslegaskítugar að innan að ég hef bara aldrei séð nokkuð þessu líkt. Ég hafði ágæta hugmynd um að þær væru skítugar en það margfaldaðist þegar ég hvolfdi þeim. Því hef ég ákveðið að þrífa þær duglega. Hvað er best að nota til að ná þessari uppsöfnuðu tjöru? Hversu grófan bursta er óhætt að nota á felgurnar?

Posted:
Tue 23. Nov 2004 12:45
by VH E36
Eg hef nú oftast notað einhvern góðan tjöruhreinsi og uppþvottaburstan hennar mömmu gömlu


Posted:
Tue 23. Nov 2004 12:50
by force`
mér finnst góður tjöruhreinsir ágætur á eitthvað svona ógeð, en ég nota mjúkann tannbursta... getur orðið seinlegt en það allavega burstar ekki felgurnar í döðlur

Posted:
Tue 23. Nov 2004 13:22
by Svezel
Ég fékk E39 bílinn minn á skítugustu felgum ever og það eina sem dugði á þær var Wurth álhreinsir og uppþvottabursti. Maður þarf bara að passa sig dálítið hvernig maður notar hreinsinn því þetta er sýra en þetta virkar líka flott.
Bóna svo bara vel á eftir svo þetta gerist ekki aftur.

Posted:
Tue 23. Nov 2004 14:16
by Kristjan PGT
Ég tók felgurnar á probe-inu gjörsamlega í gegn, með tannbursa og eitthverskonar potta mottu, eitthvað til að þvo potta or some (pabbi gamli naskur á svona dót) en sprautaði Sám yfir þetta allt fyrst og lét liggja á í smá tíma


Posted:
Tue 23. Nov 2004 15:00
by gunnar
Segið mér eitt, ég keypti mér bursta sem er sérstaklega gerður til að skrúbba felgur, en hann er svo helvíti stífur og groddaralegur, plasthár að sjálfsögðu en ég er bara að pæla hvort maður geti rispað felguna með þessu?
annars hef ég bara alltaf notað uppþvottabursta.

Posted:
Tue 23. Nov 2004 16:19
by Thrullerinn
Væri ekki líka "bakhliðin" á svampinum frá Sonax hentugur í svona
drullumall. Ég hef allavega notað hann með góðum árangri.
Fínt að nota einhvern gamlan svamp í þetta, þar sem þetta eyðileggur
hann ..
Annars ágætis yfirlit fyrir bónvörur sem ég rakst á:
http://www.sonax.is/vorur.html

Posted:
Wed 24. Nov 2004 01:57
by Maggi
Gluða Felguhreini frá Autoglym á þetta. Það er einhver sýra í því sem leysir upp ALLA drullu! Og svo bara uppþvotta bursta eða tannbursta á erfiðustu blettina!

Posted:
Wed 24. Nov 2004 11:21
by Jss
Ég nota felguhreinsi frá Concept sem inniheldur ekki sýru og hann alveg þrælvirkar, virkar betur en mörg efnin sem innihalda sýru.

Engin ástæða til að vera nota sýruviðbjóð á felgurnar ef hægt er að komast hjá því.


Posted:
Wed 24. Nov 2004 13:45
by Maggi
Jss wrote:Ég nota felguhreinsi frá Concept sem inniheldur ekki sýru og hann alveg þrælvirkar, virkar betur en mörg efnin sem innihalda sýru.

Engin ástæða til að vera nota sýruviðbjóð á felgurnar ef hægt er að komast hjá því.

Ekki eins og sýran í autoglym efninu sé eitthvað hættuleg.
Svo bara þegar maður er búin að þrífa þær allar, þá er gott að bóna þær til að fá húð yfir þær. Haldast hreinar í langan tíma og hrinda frá sér drullu!


Posted:
Wed 24. Nov 2004 16:57
by SER
Maggi wrote:Jss wrote:Ég nota felguhreinsi frá Concept sem inniheldur ekki sýru og hann alveg þrælvirkar, virkar betur en mörg efnin sem innihalda sýru.

Engin ástæða til að vera nota sýruviðbjóð á felgurnar ef hægt er að komast hjá því.

Ekki eins og sýran í autoglym efninu sé eitthvað hættuleg.
Svo bara þegar maður er búin að þrífa þær allar, þá er gott að bóna þær til að fá húð yfir þær. Haldast hreinar í langan tíma og hrinda frá sér drullu!

Ég held að Jss hafi ekkert verið að meina að sýrann væri eitthvað hættulegt eða slæm en felguhreinsir eins þessi frá Concept sem er ekki með sýru þegar að hann svínvirkar eins og hann gerir þá held ég að það sé ekki verra.
Annars verð ég að mæla með felguhreinsinum, virkaði betur á felgurnar mínar en terpentína. Svo verð ég líka að mæla með BMW felguburstanum þrælvirkar á BMW Style 32 felgurnar, myndi ekki leggja í að þrífa þær án hans


Posted:
Wed 24. Nov 2004 17:02
by oskard
ég nota nú bara tjöruhreinsi og tusku...


Posted:
Wed 24. Nov 2004 17:18
by Arnar
já, ég nota bara tjöruheinsir og háþrýstidælu

Posted:
Wed 24. Nov 2004 20:29
by Jökull
Jss wrote:Ég nota felguhreinsi frá Concept sem inniheldur ekki sýru og hann alveg þrælvirkar, virkar betur en mörg efnin sem innihalda sýru.

Engin ástæða til að vera nota sýruviðbjóð á felgurnar ef hægt er að komast hjá því.

Ég þreif heila hlið og afturhluta á nýlegum LC 100 sem var allur útí ryðguðu járnryki eftir að hann rústaði bremsuklossunum rækilega og það festist á lakkinu, felguhreinsirinn þrælvirkaði og það sast ekki á lakkinu né gummílistunum, bara nota slatta af vatni og tusku
