Page 1 of 2

Núllstilla olíumælir

PostPosted: Thu 02. Sep 2004 21:47
by redman
Þannig er mál með vexti að ég var skipta um olíu í bílnum mínum um daginn, en akturstölvan núllstiltist ekki við það. Mælirinn er kominn í rautt og sýnir að það þurfi að fara að skipta um olíu. Hvernig núllstillir maður svona ??????????????? :shock:

PostPosted: Thu 02. Sep 2004 23:19
by patta
Það er svona á mínum líka og mér var sagt að þyrfti að fara með hann í tölvu til að núllstilla :roll: sel það samt ekki dýrara en ég keypti það. Ég prufaði bara að keyra bílinn svona því það var ekki hægt að komast í tölvu hérna megin....og viti menn!!! Það slökknaði bara aftur eftir smá tíma :oops:

PostPosted: Thu 02. Sep 2004 23:23
by oskard
http://www.beckerelectronics.com/BMW/se ... reset.html


ég hef ekki prufað þetta... mér skillst að smurstöðvar eigi svona tól
til að reseta og hafa einhverjir gert þetta ókeypis fyrir fólk svo á
tb og bogl svona öruglega líka :)

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 00:50
by vallio
patta wrote:Það er svona á mínum líka og mér var sagt að þyrfti að fara með hann í tölvu til að núllstilla :roll: sel það samt ekki dýrara en ég keypti það. Ég prufaði bara að keyra bílinn svona því það var ekki hægt að komast í tölvu hérna megin....og viti menn!!! Það slökknaði bara aftur eftir smá tíma :oops:


ef þú átt heima á Akureyri (eins og stendur í draslinu hjá þér) þá er bifreiðaverkstæði bjarnhéðins með svona tölvu, þeir hafa tvisvar núllstillt fyrir mig :D

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 08:33
by saemi
Það þarf bara bréfaklemmu á þetta. Tengir saman 2 plögg í engine diagnostic socketinu. Þetta er biti af köku.





http://www.noren.com/bmw/e30reset.htm

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 12:23
by force`
saemi wrote:Það þarf bara bréfaklemmu á þetta. Tengir saman 2 plögg í engine diagnostic socketinu. Þetta er biti af köku.





http://www.noren.com/bmw/e30reset.htm



og grillar tölvuna með því.

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 12:32
by saemi
Pffff.. þetta er ekki tengt inn á tölvuna (tölvuheilan þ.e.a.s.). Þetta er mjög einfalt og ég hef gert þetta oft.

Ég ætla svo sem ekki að lofa neinu varðandi nýju bílana hvernig þetta er, en í þessum gömlu er þetta dead-easy.

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 14:41
by force`
já og þegar þetta er gert á gömlu bílana þá kemur þetta bara aftur og
aftur, eftir örstuttann tíma stundum, eyðileggur viðnámið í þessu eða
einhvern fjandann. Farið bara niðrí tb þeir eru enga stund að slökkva á
þessu ljósi þangað til að bílnum finnst að hann ætti að fara í oil service
næst.

Alger vitleysa að vera að troða í þetta svona klemmum, því að það
er minnsta málið að láta fagmenn slökkva á þessu fyrirhafnarlaust, í
stað þess að eyðileggja þetta og fá þetta ljós endalaust oft í staðinn.

Tell me about it, einhver snillingur gerði þetta á gamla bimmann minn
og það er ekki hægt að losna við þetta ljós né inspection, allt draslið
ónýtt.

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 14:44
by Jón Ragnar
enda var hann nú allur frekar sjúskaður :roll:

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 14:45
by Kull
Smurstöð Shell þarna efst á laugarvegi er líka með svona græju, redda þessu örugglega ef spurt er fallega.

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 15:10
by saemi
force` wrote:já og þegar þetta er gert á gömlu bílana þá kemur þetta bara aftur og
aftur, eftir örstuttann tíma stundum, eyðileggur viðnámið í þessu eða
einhvern fjandann. Farið bara niðrí tb þeir eru enga stund að slökkva á
þessu ljósi þangað til að bílnum finnst að hann ætti að fara í oil service
næst.

Alger vitleysa að vera að troða í þetta svona klemmum, því að það
er minnsta málið að láta fagmenn slökkva á þessu fyrirhafnarlaust, í
stað þess að eyðileggja þetta og fá þetta ljós endalaust oft í staðinn.

Tell me about it, einhver snillingur gerði þetta á gamla bimmann minn
og það er ekki hægt að losna við þetta ljós né inspection, allt draslið
ónýtt.


Það að ljósið komi aftur hefur ekkert með það að gera. Það er vegna þess að rafhlöðurnar í mælaborðinu (sem halda straum svo minnið haldi upplýsingunum) eru orðnar ónýtar. Stundum nægir að skipta um rafhlöðurnar, en oft hafa þær lekið sýrunni á prentplötuna og þá þarf að fá nýja. Ég hef skipt um rafhlöður í svona 4 borðum, yfirleitt er svona 70% prentplatnanna ónýtar.

En það að núllstilla þetta virkar alveg og maður eyðileggur ekkert við að gera þetta sjálfur.

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 16:23
by Jón Ragnar
ég testaði þetta áðan og það virkaði reyndar ekki :)

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 16:28
by patta
Ok, eins og (draslið mitt segir) þá er ég á Akureyri og þegar þetta kom hjá mér voru þeir ekki með svona tölvu!!! Og í fyrra þegar bíllinn var hjá þeim á verkstæði, þá þurfti að fá lánaða tölvu að sunnan til að lesa á bílinn :?

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 17:31
by vallio
patta wrote:Ok, eins og (draslið mitt segir) þá er ég á Akureyri og þegar þetta kom hjá mér voru þeir ekki með svona tölvu!!! Og í fyrra þegar bíllinn var hjá þeim á verkstæði, þá þurfti að fá lánaða tölvu að sunnan til að lesa á bílinn :?


hehe, afsakaðu orðbragðið "draslið" hehe :D .
þetta er ekki sama talva og er notuð til að lesa af bílunum (bilanir), þessi er bara svona eins og vasaljós í laginu. hún er ætluð til að endurstilla ljósin í mælaborðinu (inspection og oil og eitthvað), kannski er þetta notað í eitthvað meira veit ekkert um það.
ég hef bara farið á bifreiðaverkstæði bjarnhéðins og beðið hann um að endurstilla olíuljósið fyrir mig. í bæði skiptin hefur það verið bara EKKERT MÁL...

PostPosted: Fri 03. Sep 2004 17:47
by force`
saemi wrote:
force` wrote:já og þegar þetta er gert á gömlu bílana þá kemur þetta bara aftur og
aftur, eftir örstuttann tíma stundum, eyðileggur viðnámið í þessu eða
einhvern fjandann. Farið bara niðrí tb þeir eru enga stund að slökkva á
þessu ljósi þangað til að bílnum finnst að hann ætti að fara í oil service
næst.

Alger vitleysa að vera að troða í þetta svona klemmum, því að það
er minnsta málið að láta fagmenn slökkva á þessu fyrirhafnarlaust, í
stað þess að eyðileggja þetta og fá þetta ljós endalaust oft í staðinn.

Tell me about it, einhver snillingur gerði þetta á gamla bimmann minn
og það er ekki hægt að losna við þetta ljós né inspection, allt draslið
ónýtt.





Það að ljósið komi aftur hefur ekkert með það að gera. Það er vegna þess að rafhlöðurnar í mælaborðinu (sem halda straum svo minnið haldi upplýsingunum) eru orðnar ónýtar. Stundum nægir að skipta um rafhlöðurnar, en oft hafa þær lekið sýrunni á prentplötuna og þá þarf að fá nýja. Ég hef skipt um rafhlöður í svona 4 borðum, yfirleitt er svona 70% prentplatnanna ónýtar.

En það að núllstilla þetta virkar alveg og maður eyðileggur ekkert við að gera þetta sjálfur.



Annað segja flestir bmw sérfræðingar mér.
Og þetta ljós fer ekki fyrr en þetta er gert aftur, og svo kemur ljósið,
þá þarf að troða bréfaklemmunni þarna í aftur, og það slökknar,
og svona koll af kolli.