bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Skipta úr þýsku yfir í Ensku á tölvunni https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=7155 |
Page 1 of 2 |
Author: | Prawler [ Sat 21. Aug 2004 20:49 ] |
Post subject: | Skipta úr þýsku yfir í Ensku á tölvunni |
Rakst á þetta ráð á netinu. Svissið á bílinn bara rétt þannig að það kvikni á útvarpinu Haldið inni takkanum á mælaborðinu (þessum hægra megin við takkann til að núlla kílómetramælinn) í c.a 20 sek. Þá getur þú valið um tungumál á tölvunni. Ýtið bara á takkann aftur til að velja tungumál. Ég prufaði þetta og þetta virkar ![]() Ég var alltaf að fá upp "betriebsanleitg" og svo "Check Control" Það voru uppi vissar meiningar um hvað þetta "betriebsanleitg" þýddi svo að nú er það á hreinu að það þýðir "Owners manual" og ég veit núna að "Check Control" þýðir rafmagnsbilum eða bilun í tölvunni þannig að tölvan er eiginlega óvirk sem stendur. Geri ráð fyrir að ég þurfi að fara að láta tékka á henni í B&L Vona að þetta verði einhverjum að gagni. |
Author: | force` [ Sun 22. Aug 2004 05:43 ] |
Post subject: | |
Frábært að sjá þetta svona svart á hvítu, ég var einmitt að fikta í þessum tökkum hjá mér, og þetta virkaði ekki, en uppgötvaði þá líka í leiðinni að þessi takki þarna hægramegin hjá mér hefur látið lífið, og hans verður sárt saknað. En ekki veistu hvað það er ef að maður heldur inni takkanum vinstramegin við stýrið ,til að flétta upp eyðslu og hita í mælaborðinu, í einhvern smá tíma þá kemur prog 1 ------------- minnir mig að standi, finn bara ekkert yfir það hvað þetta prog 1 er og hvernig maður fiktar í því.. Bara forvitni ![]() |
Author: | Prawler [ Sun 22. Aug 2004 10:34 ] |
Post subject: | |
Það er ekki takki fyrir tölvuna vinstra megin við stýrið á mínum bíl. Það er litla tölvan í honum þannig að hún býður ekki upp á mikið, ég get ekki séð eyðslu eða neitt þessháttar. Er eingöngu með þennan skjá þarna í mælaborðinu sem gefur mér upp einhverjar meldingar ef það fer pera eða þessháttar. |
Author: | Thrullerinn [ Sun 22. Aug 2004 11:08 ] |
Post subject: | |
Síðan er líka eitt annað sambærilegt sem mjög margir vita ekki af. Ef maður lokar hurðinni með lykli og heldur lyklinum í nokkrar sek. í "loka stöðu" þá lokast allir gluggarnir ![]() |
Author: | iar [ Sun 22. Aug 2004 12:51 ] |
Post subject: | |
Thrullerinn wrote: Síðan er líka eitt annað sambærilegt sem mjög margir vita ekki af.
Ef maður lokar hurðinni með lykli og heldur lyklinum í nokkrar sek. í "loka stöðu" þá lokast allir gluggarnir ![]() Og þetta virkar líka á fjarstýringunni, þ.e. halda inni læsa takkanum á lyklinum, þá lokast gluggarnir. Amk. á E46. ![]() ![]() |
Author: | Prawler [ Sun 22. Aug 2004 13:55 ] |
Post subject: | |
Hér er gagnlegur linkur fyrir "OBC" (stóru tölvuna) http://home.iae.nl/users/bts/obc.htm |
Author: | Prawler [ Sun 22. Aug 2004 14:21 ] |
Post subject: | |
Þessi linkur er líka gagnlegur (ath PDF) http://www.europeantransmissions.com/Bulletin/DTC.BMW/bmwcod.pdf |
Author: | íbbi_ [ Sun 22. Aug 2004 14:25 ] |
Post subject: | |
ahhh geðveikt!! vona að þetta virki eins hjá mér, er með stóru tölvuna, annars sá ég ekki bílin þinn á ak um versló? nokkuð viss um að ég hafis éð þig glápa á go cart ![]() |
Author: | íbbi_ [ Sun 22. Aug 2004 19:46 ] |
Post subject: | |
hmm.. þetta virtist nú ekki virka hjá mér, hélt honum inni og eftir smá stund varð bara skjárinn tómur.. hmm en þetta með lykilin og rúðuna virkaði :Ð |
Author: | Einsii [ Tue 09. Nov 2004 14:49 ] |
Post subject: | |
Hjá mér virkaði að halda inni takkanum í mælaborðinu en það breitti bara tungumálinu fyrir upplýsingarnar frá tölvuni (eyðsla og þannig) en ekki bilana dótinu.. Þannig að þegar það fór pera hjá mér þá kem einhver þýskusteipa. Svo fann ég út að maður gæti gert eitthvað í test á tölvuni en þegar ég er kominn inn í test 11 og ætla að breita þessu með 1000 og 100 tökkunum einsog á að gera þá gerist bara ekkert.. Veit einhver hvað ég get gert.. Kann ekki þýsku ![]() |
Author: | Jón Ragnar [ Tue 09. Nov 2004 15:30 ] |
Post subject: | |
Mér fannst svalast afþýðingardæmið ![]() í E34 allavega |
Author: | Einsii [ Tue 09. Nov 2004 15:32 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: Mér fannst svalast afþýðingardæmið
![]() í E34 allavega ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | íbbi_ [ Tue 09. Nov 2004 16:22 ] |
Post subject: | |
já ertu að tala um þarna halda húnunum uppi og þá afþýðir hann lásin? seme r btw bara sniðugt og ég þarf að fá mér hlýrri úlpu til að nenna testa þetta á morgnana en ég lendi alltaf í því í frosti að ég get ekki lokað hurðunum hjá mér að aftan, þurfti að halda afturhurðini bílstjóramegin lokaðari um dagin á leið í vinnuna sem er ekki auðvelt á þetta stórum bíl jafn lítill og ég nú er ![]() |
Author: | Bjarkih [ Tue 09. Nov 2004 17:16 ] |
Post subject: | |
Helvíti væri nú þægilegt ef einhverjir fróðir hérna á spjallinu myndu taka saman svona FAQ grein um öll þessi litlu tæknilegu smáatriði. Myndi gera manni lífið mun auðveldara og skemmtilegra þegar maður kaupir sér BMW og fer að leika sér á/að honum. |
Author: | Einsii [ Tue 09. Nov 2004 18:00 ] |
Post subject: | |
Ég les alltaf owners manualinn og kemst að helling af dóti með því.. Þessi búnaður til að afþíða var lika í E28 bilnum sem ég átti. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |