Túrbo vs. Supercharger,
Það eru tveir heimar sem er verið að tala um, sumir vilja bara turbó og hlusta ekki á neitt annað, sumir SC og ekkert annað,
Túrbo á bíl sem er ekki með turbo fyrir :
Þetta er ekki neitt mega mál, málið er bara að vera búinn að reikna eitt og annað og gera ráð fyrir einu og öðru,
Pústgrein, túrbína, rör í intercooler, rör í throttle body
rör frá loftsíu(hver sem hún er og hvar) að túrbínu,
Þetta er svona basic dótið
Boost upp að 6-8psi (fer eftir stock þjöppu)
þá þarf ekki að breyta einu né neinu nema að setja fuel pressure regulator sem fer upp þegar boostið kemur inn, það er þannig á bílnum hans stefáns, en þetta er soldið gróft og ég held að það sé miklu betra að vera með stærri spíssa og smt6 og þá stillir maður bara inn nýju spíssanna þannig að vélin gangi rétt miðað við spíssana í lausagang og öðrum gangi, þetta gerir maður með að stilla bara hversu mikið minna bmw tölvan á að opna spíssanna ef það er 20% þá þarf fyrst að finna hversu mikið 20% er mikið í smt6 tölvunni svo setur maður það bara á allt kortið,
Einn á
www.bmwe30.net var með 13psi á stock vél en var með tölvu og allt virkaði fínt, um 300hö eða svo, svo eru bmw stimplarnir alveg nógu sterkir, þeir sem eru með M20B25 og 400hö eru með stock stimpla en eru búnir að renna þá til að lækka þjöppu. Frá og með ´96 held ég eru allir BMW stimplar þrykktir,
Allar bmw blokkir taka turbó það er bara svoleiðis, en þær sem er búið að bora til að stækka cc er best að sleppa túrbo því að cylender veggirnir eru orðnir kannski of grannir,
að setja túrbo í bíl er ekki mikið mál, málið er undirbúningur og að vera búinn að reikna og ákveða hvernig hlutirnir eiga að vera,
Kostnaður:
Túrbó kannski T4 með 55mm inngagni er hægt að fá af Dodge Dakota Turbo eða öðrum amerískum 2,2 túrbo, það er skrítið hvað sumir þeirra eru með stórar túrbínur, langt stærri en japanskir bílar. Það þarf að taka hana upp og kostar það um 40-80þús, túrbínan sjálf þarf ekki að kosta mikið af partasölu, verður bara að taka upp, hægt að henda með kúlu legum ef menn vilja
Rör: hægt að versla þau öll í Sindra, kosta ekkert heavy kannski total 15þús mest
Hosur : Bílanaust er með bláar hosur eins og Samco, meter kostar 2000þús,
Hosuklemmur : þessar bláu eiga að duga vel, klink bara
Pússtgrein : hægt er að versla sumt af tildæmis 324td ´94 á E36 325i en greinin er ekki góð fyrir nema algjört max 300hö, annar er hægt að láta smíða hana eins og flækjur. Kostar frá 50-100þús
Púst: downpipe er það sem þarf, bmw púst er ekki fyrir þótt að túrbo sé komið á, stock röra stærð og ef stock röra stærð er "1,75 þá ætti "2,5 að vera góð stærð á downpipe,
Olíu smurning á túrbínunni : hérna þarf að gera niður fall á olíupönnuna
til að olían geti fallið strax frá túrbínunni, svo þarf olíu að og þá er hentugast að taka hana frá þar sem að olíuþrýstingsskynjarinn er,
Eitt að lokum í sambandi við túrbo:
Stærðinn á rörunnum að innsogsspjaldinu er fínt að hafa ekki stórt til að minnka turbo lag, stock innsogs spjald stærð er max að mestu leiti, því að loftið sem kemur frá túrbínunni skiptir ekki máli heldur það loft sem er fyrir utan ventlanna, og ef leiðin þangað er þröng frá túrbínunni þá er minna CC að fylla áður enn þrýstingur er kominn þar,
Púst á túrbo má ekki vera of stórt og ekki of lítið, bæði skemmir túrbínuna og skilar miklu minna power,
Supercharger:
Til eru nokkrar og ætla ég ekki að tala neitt nema þann sem skilar betri power heldur en túrbo
Ég held að hann heiti whipple charger, hann getur skilað max boost úr lausagang, það er einhver útgáfa af þessu í nýjum kompressor bensum, sá er líka með kúplingu,
Ég myndi vilja Whipple charger, en það væri mesta bitch að smíða svoleiðis á því að þetta tekur plenty pláss og það er ekkert af því hjá mér,
það væri hægt að setja svona á V12 bimma, en bara ef stock manifoldið væri tekið af og alveg nýtt með WC smíðað frá byrjun, þá væri sko hægt að toga hús með V12 bimma, vvið erum að tala um 350hö í 3000 og um 500hö í 5800 kannski eitthvað svoleiðis,
t.d væri um 150 í 1200snúningum
Superchargerar er verið að þróa meir en túrbo í dag og eru þeir alltaf að batna og batna, túrbo skila samt meiri kraft almennt einnnig betri low end,
ESS Supercharger frá GST á 2,8 E36/34 myndi kosta um 500þús og setja hann í svona 290hö eða um það bil, ég gæti beðið um öðruvísi hjól og boostað 9psi í staðinn fyrir 6psi, þá væri hann svona 320hö,
Á mörgum sviðum væri betra að kaupa M3/M5 en M5/M3 eru þyngri bílar, supercharger kerfi bætir á 25kg, 2,8 bíll er miklu léttari en 3,2 M3 t.d hvað þá 2,5 E34 yfir E34 M5, svo er það líka sleeper dæmið sem sumir vilja,
2,8 E36 með supercharger væri miklu léttari(ál blokk og vél, á móts við stál blokk og álhedd)
einnig myndi supercharged E34 2,5(max 300hö) ekki eyða 17lítrum eins og hjá Bebecar,
Kostir og gallar er það sem þetta snýst um
túrbo ef þú vilt bara power, veri í beygjum á hálfri gjöf
suprecharger erf þú vilt power en ekkert lag, samt minna power, betri í beygjum á hálfri gjöf
NA ef þú vilt throttle response og bestur í beygjum við hvaða gjöf sem er,
Túrbo getur komið þér á óvart í beygjum ef það boostar alltíeinu, þá er hægt að missa hann,
SC gæti verið tilbúinn að gefa power og því erfiðara að velja stað í beygjunni til að gefa í,
NA, þú tekur þá línu sem þú vilt og getur stýrt afturendanum með gjöfinni ef þess þarf