Er með E36 sedan og mótorinn til að stilla hliðarspegilinn hefur verið að erfiða að undanförnu. Keypti því notaða spegla, skrúfaði þá á bílinn, tengdi og þá virkaði þetta allt saman nokkuð eðlilega. Þar sem nýju/notuðu speglarnir voru frekar sjúskaðir þá réðist ég í það verkefni að færa mótorinn yfir í gamla spegilinn. Þegar þetta er svo allt saman komið saman þá prófa ég þetta og þá byrjar sama vesenið aftur, þ.e.a.s. mótorinn erfiðar. Þarf að resetta kerfið eitthvað eftir svona mótorskipti eða er eitthvað annað sem vert er að athuga?
_________________ E36 BMW 316i M-Tech 1998
|