Page 1 of 1

vandamál að snúa m50b25 vanos mótor

PostPosted: Wed 22. Apr 2015 21:50
by AZE34
Góðan daginn

Ég er hér með mótor sem endaði á hvolfi og næ ekki að láta mótorinn snúa sér. Ég er búinn að aftengja ignition wire harness (man ekki hvað það heitir á íslensku) og eins er ég búinn að taka kertin úr svo að vélinn geti spítt úr sér það sem fór í öfuga átt á meðan hún var á hvolfi

Hvað er til ráða?

Re: vandamál að snúa m50b25 vanos mótor

PostPosted: Fri 24. Apr 2015 19:20
by x5power
Ekki bara bogin stimpil stöng?

Re: vandamál að snúa m50b25 vanos mótor

PostPosted: Mon 27. Apr 2015 21:54
by Lindemann
Er hann ekki bara úrbræddur?
Ef hann hefur farið á hvolf og ekki dáið á honum strax eru allar líkur á að hann sé bara úrbræddur á höfuðlegum

Re: vandamál að snúa m50b25 vanos mótor

PostPosted: Tue 28. Apr 2015 00:07
by D.Árna
Einnig spurning með hedd. Bíllinn lendir á hvolfi ofan í skurð og mótor gekk í eitthvern smá tíma þangað til hann dó. Mikill reykur myndaðist þannig það er pæling hvort hann hafi tapað af sér vatninu og hitað sig þangað til hann deyr.

Re: vandamál að snúa m50b25 vanos mótor

PostPosted: Wed 29. Apr 2015 16:25
by AZE34
Það var drepið á honum strax þegar hann lenti á hvolfi þannig að það sé á hreinu þannig að það sé hægt að h útiloka það að hann hafi gengið á hvolfi. :D