Page 1 of 1
M43 viðhald

Posted:
Thu 22. Jan 2015 20:57
by Mazi!
Ég er að spá hvaða hlutir eru veiku hlekkirnir í m43 sem borgar sig að fyrirbyggja með
viðhaldi ?
Litla m43 rækjan í e46 hja mér er mjög solid enþá er ekinn um 180 þús km, en mig langar að fyrirbyggja allt viðhald áður en eitthvað fer að klikka enda er þetta orðið gamallt dót.
Re: M43 viðhald

Posted:
Thu 22. Jan 2015 22:21
by Edvalds26
Ég myndi taka ventlalokið af og þar er smurlögn sem er yfir knastásinum og sprautar á hann smurolíu, þessi lögn vill stundum stíflast og þá fær knastásinn ekki smurningu og endist stutt, einfalt að taka hana af og þrífa hana, eykur líftíma vélarinnar þannig
Re: M43 viðhald

Posted:
Thu 22. Jan 2015 23:53
by sosupabbi
Það þarf að nota nýjar skinnur ef smurlögnin er tekinn af, þetta eru álskinnur og þær eru einnota.
Re: M43 viðhald

Posted:
Sun 25. Jan 2015 23:33
by ömmudriver
Myndi líka jafnframt passa uppá að skipta um kælivökvan á réttum tíma og ekki trassa olíuskipti og nota góða og rétta olíu.
Re: M43 viðhald

Posted:
Sat 31. Jan 2015 16:23
by Angelic0-
skipta um allt plast á mótor nema soggrein...