Page 1 of 1

glertopplúga í e39

PostPosted: Wed 20. Aug 2014 22:18
by plankinn
Sælir. Langar í glertopplúgu í kaggann og sé að það er hægt að fá glerið á klink. Veit einhver
Hvort glerið passar beint í brautina fyrir lúguna ? Finnst það mjög líklegt , en ef einhver vissi það
Fyrir víst væri gott að frétta af því.
Hef ekki áhuga á hvað menn halda .
Takk . Kv Trausti.

Re: glertopplúga í e39

PostPosted: Thu 21. Aug 2014 00:28
by Danni
Þú þarft allt unitið.

Ástæðan er sú að með járn topplúgu er flekinn innaní, sem er í sama lit og toppklæðningin, festur við topplúguna.

Með glertopplúgu er flekinn með handfangi og laus frá svo að það sé hægt að loka fyrir ef maður vill.

Allt öðruvísi unit í kjölfarið.

Re: glertopplúga í e39

PostPosted: Thu 21. Aug 2014 12:44
by plankinn
Fjandinn ! Takk fyrir þetta .