Page 1 of 2

Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:18
by isjakar
Einhverjar ábendingar um hverjir séu bestir á landinu í að forrita/endurforrita mótortölvur? Ekki bara BMW, heldur almennt.

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:25
by Omar_ingi
isjakar wrote:Einhverjar ábendingar um hverjir séu bestir á landinu í að forrita/endurforrita mótortölvur? Ekki bara BMW, heldur almennt.

Þú getur talað við Gumma 303, skilst að hann vinnur hjá virtasta tölvufyrirtæki íslands

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:33
by gardara
Baldur Gíslason

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:43
by isjakar
gardara wrote:Baldur Gíslason

Takk fyrir þetta, búinn að finna Gunnar og senda póst, en Baldur, eitthvað nánar svo ég geti fundið hann?

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:52
by gardara
isjakar wrote:
gardara wrote:Baldur Gíslason

Takk fyrir þetta, búinn að finna Gunnar og senda póst, en Baldur, eitthvað nánar svo ég geti fundið hann?


baldur@foo.is

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Fri 15. Aug 2014 15:59
by isjakar
Takk fyrir þetta, piltar

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Sun 17. Aug 2014 14:35
by bimmer
Hvað vantar þig að láta forrita?

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 13:17
by isjakar
Flytja driflínu, díselvél og skiptingu, úr nýjum bíl í annan. Og fá það til að virka. Bjartsýni kannski, en er gert erlendis.

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 15:26
by Angelic0-
Bjartsýni, why? Èg færði canbus í E36... fylgdi reyndar allt rafkerfi...

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 16:42
by isjakar
Þetta er VM 3,0 V6 dísillinn úr nýjum Ram 1500 EcoDiesel með 8 gíra ZF skiptingu og BW millikassa, sett í nýsmíðaða ferðaþjónustu- og björgunarjeppa. Halda öllu standard, afgaskerfi líka, en ná út beltastrekkjurum, ABS ofl villumeldingum. Held að það sé Magneti Marelli stýring á þessu, ekki viss samt.
Nýr svona Ram diesel fæst á $30.000+, það má henda restinni af bílnum og græða samt miðað við að kaupa lausan Iveco mótor t.d.
Ef hægt er að hreinsa allar villur eftir ísetningu í annan bíl.

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 19:41
by slapi
isjakar wrote:Þetta er VM 3,0 V6 dísillinn úr nýjum Ram 1500 EcoDiesel með 8 gíra ZF skiptingu og BW millikassa, sett í nýsmíðaða ferðaþjónustu- og björgunarjeppa. Halda öllu standard, afgaskerfi líka, en ná út beltastrekkjurum, ABS ofl villumeldingum. Held að það sé Magneti Marelli stýring á þessu, ekki viss samt.
Nýr svona Ram diesel fæst á $30.000+, það má henda restinni af bílnum og græða samt miðað við að kaupa lausan Iveco mótor t.d.
Ef hægt er að hreinsa allar villur eftir ísetningu í annan bíl.


Ok það þarf svolítið að upplýsingum með þessu.
Tók létt google á þetta , en svona án ábyrgðar þá sýnist mér á plöggum að það sé Bosch EDC 17 tölva í þessu. Hún er frekar erfið viðureignar en það eru MJÖG fáir í þeiminum sem forrita enn þessa tölvu via bus. Það er búið að vera ansi lengi sem það hefur þurft að taka tölvuna í sundur og skrifa beint inn á kubbinn. Síðast þegar ég vissi var ekki hægt að komast framhjá þjófavörninni með að forrita tölvuna nema að setja upp einhverja emulatora.
Það er ný lenska að ræsivarnakóðinn rúllar núna á 3 staði , vél , skiptingu , og einhversskonar immobilizer box.
Þetta er áhugavert sem þú ert að pæla, gangi þér vel með þetta.

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 19:54
by Jón Ragnar
Omar_ingi wrote:
isjakar wrote:Einhverjar ábendingar um hverjir séu bestir á landinu í að forrita/endurforrita mótortölvur? Ekki bara BMW, heldur almennt.

Þú getur talað við Gumma 303, skilst að hann vinnur hjá virtasta tölvufyrirtæki íslands



8) 8)

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Mon 18. Aug 2014 20:47
by gstuning
isjakar wrote:Þetta er VM 3,0 V6 dísillinn úr nýjum Ram 1500 EcoDiesel með 8 gíra ZF skiptingu og BW millikassa, sett í nýsmíðaða ferðaþjónustu- og björgunarjeppa. Halda öllu standard, afgaskerfi líka, en ná út beltastrekkjurum, ABS ofl villumeldingum. Held að það sé Magneti Marelli stýring á þessu, ekki viss samt.
Nýr svona Ram diesel fæst á $30.000+, það má henda restinni af bílnum og græða samt miðað við að kaupa lausan Iveco mótor t.d.
Ef hægt er að hreinsa allar villur eftir ísetningu í annan bíl.


Það væri nú ekkert verra til ef það væri Marelli í þessu.
Eins og Davíð nefnir er þetta ekki beint auðvelt tölva í svona æfingar.

Á meðan bílinn keyrir vandamálalaust getur varla verið mikið vesen að hafa með einhverjar villur, gefið að það hafi ekki áhrif á aksturinn

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Tue 19. Aug 2014 00:20
by isjakar
Jú, virðist vera Bosch á þessum mótor. Ef þetta er gerlegt, að fá settið til að ganga utan Ramsins, er þetta lang-hagkvæmasta dísellausnin og því budget í þónokkra vinnu við að leysa tölvumálin.

Re: Tölvugúrúar Íslands

PostPosted: Tue 19. Aug 2014 05:38
by slapi
Hvernig bíl ertu að pæla að setja þetta í?

Þú verður að hugsa ansi langt í þessum efnum því það þarf helling til að þetta virki allt saman.
T.d. Þarftu að pæla í hvernig þú ætlar að búa til hraða signal en það er critical fyrir vél og skiptingu og þó ég þekki ekki bílinn þá er næsta víst að það kemur via CAN. Einnig með mælaborðsmál. Ef þú ferð í þetta verðurðu að gera x3 á budgetið sem þú áætlar á fyrsta bílinn.