Ég er að skipta um innréttingu í e34 bílnum mínum. Ég er búinn að ná öllu af (stýri, mælaborði, hanskahólfi, miðstöð og litlum einingum í kring um farþega frammí) nema stóru láréttu hillunni sem er undir framrúðunni.
Hillan virðist samt vera orðin nokkuð laus, búinn að losa skrúfur undir loftúttaki ofan á hillunni og skrúfur í báðum endum.
Veit einhver trikkið við að ná hillunni úr?

