Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Wed 30. Oct 2013 22:30
by eythorarnar
Ég er nýbúinn að fjárfesta í bmw 520i e39 2003 árgerð og það er smá vandamál, útvarpið er mjög leiðinlegt. Það dettur mjög oft út eða virkar yfir höfuð ekki. Þetta er mjög skrýtið því svo kemur það inn og virkar fullkomnlega. Það finnur samt alltaf rásir þegar það er kveikt á því en yfirleitt heyrist ekkert. Ef maður hækkar alveg í botn þá heyrist samt pínu tal en samt varla neitt. Svo vantar líka ansi marga pixla í skjáinn.
Kannast einhver við þetta og er eitthvað hægt að gera?
Svo er líka eitt, mig vantar aukalykil, er hægt að fá hann öðruvísi en frá umboðinu á okurverði?
Re: Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Thu 31. Oct 2013 02:26
by Angelic0-
Ertu búinn að kanna hvort að þetta gerist þegar að þú setur afturrúðuhitarann á...
Annars er ég alveg öruggur á því að þetta eru loftnetsmagnararnir... staðsettir sitthvorumegin við afturrúðuna... gæti mögulega átt þetta..
Re: Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Thu 31. Oct 2013 11:49
by Helgason
eythorarnar wrote:Svo er líka eitt, mig vantar aukalykil, er hægt að fá hann öðruvísi en frá umboðinu á okurverði?
Hvað er verðið á því? Þegar ég talaði við umboðið held ég að hann hafi átt að kosta 12 þúsund.
Re: Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Thu 31. Oct 2013 12:07
by rockstone
Helgason wrote:eythorarnar wrote:Svo er líka eitt, mig vantar aukalykil, er hægt að fá hann öðruvísi en frá umboðinu á okurverði?
Hvað er verðið á því? Þegar ég talaði við umboðið held ég að hann hafi átt að kosta 12 þúsund.
ekki ef þú vilt með fjarstýringu líka, þa´held ég að það sé um 70þ?
Re: Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Sat 02. Nov 2013 02:09
by Helgason
rockstone wrote:Helgason wrote:eythorarnar wrote:Svo er líka eitt, mig vantar aukalykil, er hægt að fá hann öðruvísi en frá umboðinu á okurverði?
Hvað er verðið á því? Þegar ég talaði við umboðið held ég að hann hafi átt að kosta 12 þúsund.
ekki ef þú vilt með fjarstýringu líka, þa´held ég að það sé um 70þ?
Getur verið... en ég hef alltaf skilið hugtakið 'aukalykill' sem eitthvað sem þú vilt kaupa eins ódýrt og mögulegt er.
Re: Útvarpsvandamál í e39

Posted:
Sat 02. Nov 2013 04:05
by srr
Vantar þig ekki bara magnarann sem er vinstra meginn í skottinu ?