Ég er nýbúinn að fjárfesta í bmw 520i e39 2003 árgerð og það er smá vandamál, útvarpið er mjög leiðinlegt. Það dettur mjög oft út eða virkar yfir höfuð ekki. Þetta er mjög skrýtið því svo kemur það inn og virkar fullkomnlega. Það finnur samt alltaf rásir þegar það er kveikt á því en yfirleitt heyrist ekkert. Ef maður hækkar alveg í botn þá heyrist samt pínu tal en samt varla neitt. Svo vantar líka ansi marga pixla í skjáinn.
Kannast einhver við þetta og er eitthvað hægt að gera?
Svo er líka eitt, mig vantar aukalykil, er hægt að fá hann öðruvísi en frá umboðinu á okurverði?

