bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skipta um spindilkúlu
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=7&t=63784
Page 1 of 1

Author:  Hjalti123 [ Tue 29. Oct 2013 19:52 ]
Post subject:  Skipta um spindilkúlu

Þar sem ég veit ekki mikið um þetta sjálfur ákvað ég að spyrja hér :)

Fór með bílinn í aðalskoðun í hafnarfirði fyrir 2 mánuðum og fékk endurskoðun út á nokkra minniháttarhluti. Bíllinn hefur alltaf verið hundleiðinlegur þegar hann fer í holur og svona hristist allur í stýri og ég veit ekki hvað og hvað, hugsaði ekkert út í það þannig fyrr en núna. Eeeen svo var verið að skipta um bremsur í bílnum í dag og þá kom í ljós að nokkrir hlutir eru ekki í lagi og var ekkert sett út á í skoðun. Fyrst er það gormur aftan sá sem er ekki bara brotinn á einum stað heldur þríbrotinn... Annað sem var að er hjólalega að aftan og svo það besta spindilkúla framan á sem mér var sagt að er gjörsamlega haaaaandónýt sem er náttúrulega stórhættulegt :aww:

Nú veit ég ekkert hvernig þetta er eeen, hvað myndi það kosta mig að láta skipta um þetta? Þá er ég að tala um vinnu + varahluti?

Author:  gardara [ Tue 29. Oct 2013 20:34 ]
Post subject:  Re: Skipta um spindilkúlu

Talaðu við Nonna í autosport, hann ætti að geta gefið þér verð í þetta.

Sími 847-8888

http://autosport.is/

Author:  Hjalti123 [ Tue 29. Oct 2013 20:51 ]
Post subject:  Re: Skipta um spindilkúlu

gardara wrote:
Talaðu við Nonna í autosport, hann ætti að geta gefið þér verð í þetta.

Sími 847-8888

http://autosport.is/


Ég tjékka á því á morgun ;) Þakka þér fyrir :)

Author:  Hjalti123 [ Thu 31. Oct 2013 23:34 ]
Post subject:  Re: Skipta um spindilkúlu

Þetta er neðri spindill sem þarf að skipta um ef mér skilst rétt og þá þarf víst að taka spyrnu með og setja skipta um hana líka. Er þetta rétt hjá mér? Ef svo er þarf ég þá að kaupa spyrnuna sér og spindilinn sér líka? Eða er spindillinn bara alveg fastur á spyrnunni?

Author:  srr [ Fri 01. Nov 2013 01:50 ]
Post subject:  Re: Skipta um spindilkúlu

Hjalti123 wrote:
Þetta er neðri spindill sem þarf að skipta um ef mér skilst rétt og þá þarf víst að taka spyrnu með og setja skipta um hana líka. Er þetta rétt hjá mér? Ef svo er þarf ég þá að kaupa spyrnuna sér og spindilinn sér líka? Eða er spindillinn bara alveg fastur á spyrnunni?

Það er hægt að skipta um spindilkúlurnar í þinni spyrnu.
Keyptu þetta hérna: viewtopic.php?f=12&t=63754

Allar 4 á góðu verði :thup:

Nonni ætti að geta skipt um þetta alltsaman fyrir þig.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/